#eldri konur
Explore tagged Tumblr posts
fyndnarmyndir · 4 years ago
Photo
Tumblr media
Amma halda þessari vinir standa heima
0 notes
reykjavegan · 3 years ago
Text
Dásamlegar vegan dekurolíur fyrir óléttar konur (eða bara öll sem langar að gefa sér smá dekur)
Tumblr media
Ég vil byrja á að taka það fram að ég er ekki af þeirri skoðun að ég trúi því að hægt sé að koma í veg fyrir slitför. Á fyrstu meðgöngunni minni reyndi ég allt sem ég gat. Ég bar á mig sértilgerðar bumbuolíur kvölds og morgna og E-vítamín krem þess á milli og var svo miður mín þegar ég sá nokkuð snemma á meðgöngunni að ég var að fá slit. Undir lok meðgöngu var ég orðin vel skreytt slitum og skildi ekkert í því, þar til ég fór að lesa mér meira til um meðgöngu, fæðingu og kvenlíkamann yfir höfuð. Margt bendir til þess að líkurnar á því að fá slitför á meðgöngu sé ættgengt, í mínu tilfelli átti það við, auk þess sem ég er einfaldlega frekar lítil kona sem fær alltaf RISA stórar óléttubumbur, það er kannski engin furða að húðin mín finni ekki hjá sér mikinn aukinn teygjanleika á leifturhraða til þess að bregðast við þessum bumbum. Og í dag veit ég að það er bara allt í lagi, svona er lífið og núorðið finnast mér tígrisrendurnar á bumbunni bara svoldið töff ummerki um krefjandi ferðalög sem skila þvílíkum dásemdar ávöxtum.
EN það er annað sem ég trúi mjög innilega á og það er að fólk þurfi að gera eins vel við sig, eða óléttu maka sína, og hægt er á þessum krefjandi ferðalögum. Sjálfsdekur er að mínu mati dýrmætt og hollt öllum, en sérstaklega er það mikilvægt í kring um barnsburð, þá bæði á meðgöngunni og eftir fæðingu þegar líkaminn er þreyttur og hormónarnir í hæstu hæðum. Það er ótrúlegt hvað það að ákveða að gefa sér smá tíma í friði til þess að hlúa að líkamanum getur gert mikið fyrir andlega líðan, jú og vissulega líkamann í leiðinni. Þess vegna hef ég á báðum meðgöngum og þar í kring (eldri sonur minn er 3 ára, ég er núna gengin rúma 8 mánuði með yngri soninn) sett mér það markmið að gera eins vel við mig og ég mögulega get, afþví þessu langa ferli fylgja vissulega ýmis líkamleg óþægindi sem erfitt er að komast hjá og þá er gott að vega upp á móti með reglulegum huggulegheitum.
Frábær dæmi um dekur sem eiga vel við á/eftir meðgöngu eru til dæmis: fótabað, djúsí maskar, safarík serum, nærandi andlitskrem, ljúdar líkamsolíur, frábær fótakrem, kúl kroppakrem og allt sem lætur þér líða eins og þú sért að fá það dekur sem þú átt skilið, því öll eigum við það skilið! Athugaðu samt að á meðgöngunni skiptir jafnvel enn meira máli en vanalega að nota hreinar og góðar vörur, eða búa þær til sjálf úr hráefnum sem þú getur treyst. Svo er auðvitað ekki síður gott fyrir líkama og sál að komast í meðgöngujóga, flot, nudd eða hugleiðslu og borða góðan og nærandi mat (ef þú mögulega getur, það er ekkert sjálfsagt með ógleði og bakflæði og hvaðeina, látið mig þekkja það!) og muna að taka vítamín við hæfi, barnið tekur nefnilega af þínum skömmtum.
En tölum nú um heimadekrið!
Ég elska að búa til húðvörur heima og prufa mig áfram með allskonar ilmblöndur, ég grínast stundum um það að ég lifi lífinu óvenjulega mikið gegn um nefið afþví ég er svo næm og viðkvæm fyrir lyktum, en fátt gleður mig meira en að finna virkilega góða og náttúrulega ilmi. Að því sögðu á ég líka í svolítið flóknu sambandi við ilmvötn og snyrtivörur þar sem ég er með ofnæmi fyrir örugglega 80+% af kemískum snyrtivörum og ilmvötnum, sem hefur verið hvetjandi í að kynnast náttúrulegum snyrtivörum og ilmum og læra að búa til vörur úr innihaldsefnum sem ég þekki.
Hér að neðan fylgja tvær uppskriftir af dekur-bumbuolíum sem ég vann í samvinnu við Heilsu úr Aqua Oleum vörum sem finna má í Heilsuhúsinu, til dæmis. Önnur olían hentar vel til að koma sér í gírinn á morgnanna og sú seinni hjálpar okkur að finna ró fyrir háttinn. Ég vil eins og áður kom fram, frekar líta á olíurnar sem dekurolíur heldur en vörn gegn slitförum, þó þær geti að sjálfsögðu verið það. Ágæti þeirra er þó algerlega óháð því hvort konur slitni eða ekki, þar sem það kann að vera óhjákvæmilegt hjá mörgum okkar. Þær eru búnar til úr ýmsu góðgæti sem getur hjálpað húðinni að takast á við álagið sem því fylgir að þurfa að teygjast mikið og hratt, svo eru þær nærandi og ilma dásamlega. Auk þess finnst mér verðugt markmið að reyna að taka frá stund daglega, til dæmis fyrir háttinn, til þess að dekra við bumbuna. Gefa duglega líkamanum þínum og litlu manneskjunni sem hann er að rækta óskipta athygli, þó ekki sé í nema nokkrar mínútur, til þess að tengja við líkamann þinn sem virðist breytast mínútna á milli á þessum tíma. Þetta hjálpaði mér mikið á fyrri meðgöngu þar sem ég fékk heiðarlega risastóra bumbu, en ég var algjört písl þegar ég varð ólétt. Mér fundust breytingarnar erfiðar (ekki síst athugasemdirnar sem stórri bumbu fylgdu) en það að vera í góðu sambandi við líkamann hjálpaði mikið að sporna gegn spéhræðslu og ótta við breytingarnar, jú og slitin sem komu snemma og eru mörg.
Hvaða grasagrams og náttúrulækningar varðar þá hef ég lengi verið áhugasöm um þau fræði, enda alin upp á heimili þar sem óhefðbundin hollusturáð, jurtatínsla og jurtafæði tíðkuðust frá því ég man eftir mér. Það hefur því alltaf verið mér eðlistætt að hugsa um heilsu á heildrænan máta og reyna að bregðast við hverskonar kvillum á sem náttúrulegasta máta. Hvað ilmkjarnaolíur varðar þá hef ég meðal annars setið námskeið í notkun þeirra í hreingerningar og snyrtivörugerð, lesið ýmiskonar bækur og spurt mér fróðari konur ráða (til dæmis Lindu í Heilsuhúsinu Lágmúla sem er þvílíkur viskubrunnur!) og er enn að sanka að mér þekkingu. Í stuttu máli þá er ég ekki sérmenntuð í faginu, en er stöðugt að safna þekkingu úr ýmsum áttum og hef þar að auki aflað mér nokkurrar reynslu á eigin (sjúklega viðkvæma skinni) til þess að byggja ráðleggingar á.
PS. Ef ykkur langar að fletta upp hvaða olíur eru taldar öruggar á meðgöngu og í kring um lítil börn mæli ég með bókinni „The Complete Book of Essential Oils for Mama and Baby: Safe and Natural Remedies for Pregnancy, Birth, and Children„ eftir Christina Anthis, hún er aðgengileg og fróðleg.
Tumblr media
Olíurnar:
Það er til svo mikið af girnilegum grunnolíum, en það er mikilvægt að þynna ilmkjarnaolíur áður en þær eru bornar á húðina til þess að forðast ofnæmi. Margar hverjar eru þær mjög sterkar og geta orðið ertandi ef óvarlega er farið. Eins mæli ég með því að þvo hendur vel til eftir að hafa sett saman olíublöndur, til þess að forðast að fá óvart olíu í augu eða munn.
Nokkur dæmi um grunnolíur eru möndluolía, avókadóolía, hampolía, jojoba olía, castorolía, rósaberjaolía og gamla góða ólífuolían (það má oft redda sér með því sem er til heima).
Það getur verið gott að bæta E-olíu dropum út í húðolíur, þeir lenga líftíma olía og þykja góðir gegn örum og slitum, til dæmis. Eins getur oft verið sniðugt að blanda sama grunnolíum sem hafa ólíka eiginleika til þess að ná fram þinni drauma blöndu eða áferð.
Á meðan þið eruð að prufa ykkur áfram, og ef það sem þið eruð að búa til er drjúgt og endist lengi, þá mæli ég með því að byrja á að búa til minni skammta. Það er svo leiðinlegt að gera stóra skammta af einhverju sem þú endar svo á að fíla ekki og fer þá til spillis, ég tala af reynslunni! Það er mikið skemmtilegra að búa til fleiri minni skammta, því þetta er óttalega notalegt og nornalegt dundur.
Ílát fyrir heimagerðar olíur, sprey og krem fást í ýmsum umhverfisvænum verslunum svo sem Vistveru, Menu/Sambúðinni, í Jurtaapótekinu, og jafnvel í Søstrene Grene. En ég mæli líka með því að geyma umbúðir utan af serumum, fljótandi vítamínum (Floravital brúsarnir eru líka gordjus undir afleggjara!), stevíu-og vanilludropum, þær koma iðulega að góðu gagni og lokin af matreiðsluvörum passa oft á apótekaraflöskur ef þú átt ekki rétt lok.
Ég gerði uppskriftir að neðan í tveimur hlutföllum, 100ml og 50ml, en ef ykkur langar að prufa ykkur áfram varlega án þess að gera svo stóra skammta getið þið byrjað á að deila uppskriftunum niður á minni skammta eða gúglað töflur með fleiri hlutföllum.
Tumblr media
Innihaldsefnin:
Grunnolíur:
Möndluolía: Ég nota möndluolíu sem aðal grunn. Hún smýgur mjúklega inn í húðina, nærir vel án þess að vera of þykk og ber ekki með sér sterka lykt. Rósaberjaolía: Í olíum eins og þeim sem ég er að gera er oft notuð E-olía sem er yndisleg, en ég fann ekki vegan E-olíu sem hentaði þegar ég var að undirbúa uppskriftina svo ég valdi rósaberjaolíu í staðinn, hún ekki alls ósvipuð. Nokkrir eiginleikar sem taldir eru tilheyra rósaberjaolíu eru til dæmis að draga úr örum og hrukkum og styrkja húðina, en mér finnst líka bara alltaf einhver lúxus fílingur yfir henni. Ég nota hana stundum eina og sér sem serum og finnst sérstaklega gott að setja hana á augabrúnir eftir litun og plokkun.
Ilmkjarnaolíur:
Lavender: Líklega heimsins vinsælasta olía, en listinnn af mögulegum frábærum áhrifum hennar er á lengd við meðal símaskrá. Hún er mikið notuð til að létta lund, til að hjálpa fólki að finna ró og sofna. Ekki skemmir fyrir að hún hefur sýkladrepandi eiginleika og virðist vera lykt sem leggst ágætlega í mikið af fólki.
Frankincense: Talin hjálpleg við öndunarfæravandamálum, auk þess sem hún er róandi og ilmar mjög vel ein og sér. Oft notuð við hugleiðslu.
Greip olía: Meðal annars talin létta lund, draga úr streitu og hafa góð áhrif á húðheilsu.
Cedarwood olía: Vellyktandi og vinsæl í ilmvötn. Talin róandi og geta hjálpað fólki með svefnvanda, auk þess sem hún er talin geta gagnast í baráttunni við acne, ör og langvarandi húðvandamál á borð við exem.
Mandarínu olía: sérlega sæt og kætandi sítrusolía. Talin hafa róandi áhrif og getað unnið gegn örum og jafnvel slitum, auk fjölmargra annarra góðra áhrifa.
Uppskriftirnar
Morgunolía – 100ml
Þessi olía er örvandi og frískandi og á því betur við á morgnanna. Það er svo gott að taka svona fallega lykt með sér inn í daginn.
Hlutföll: 100ml af burðarolíu á móti 30-40 dropum af ilmkjarnaolíum
Ef þið eruð óvön því að nota ilmkjarnaolíur mæli ég með því að byrja á 30 dropum og bæta frekar við ef þið viljið sterkari ilm eða finna betur fyrir olíunum.
- Möndluolía: 80% af burðarolíunni (ca. 80ml
- Rósaberjaolía: 20% af burðarolíu (ca. 20ml)
- Lavender ilmkjarnaolía: 15 dropar
- Greip ilmkjarnaolía: 8 dropar
- Cedarwood ilmkjarnaolía: 7 dropar
Kvöldolía – 50ml
Þessi olía er róandi og nærandi og ilmirnir hjálpa okkur að slaka á og draga djúpt andann:
Hlutföll: 50ml af burðarolíu á móti 20 dropum af ilmkjarnaolíum
- Möndluolía: 80% af burðarolíu (ca. 40ml)
- Rósaberjaolía: 20% af burðarolíu (ca. 10ml)
- Lavender ilmkjarnaolía: 10 dropar
- Frankincense: 5 dropar
- Mandarínuolía: 5 dropar
Ég er mjög ánægð með þessar olíur, þær eru nærandi en ekki lengi að smjúga inn í húðina og veita raka í lengri tíma, passið samt að fara ekki í þröng-eða spariföt rétt eftir að þið hafið borið á ykkur olíu, það geta komið blettir.
Annars vona ég bara að þið hafið haft gaman og vonandi gagn af þessum lestri og uppskriftum. Gangi ykkur sem allra best að prufa ykkur áfram í heimagerðum dekurvörum og að tileinka ykkur sem mestan dekurtíma!
0 notes
auduraudur · 6 years ago
Text
Endilega panikkið: það sem allir þurfa raunverulega að vita um „Momo challenge“, kúkandi Elsur og hysteríska foreldra
Fyrir rétt tæpum 10 árum síðan varð ég ólétt að syni mínum.
Það var mikil gleði. Ég var týnt „young adult“ sem var búin að leggja af stað í heimsreisu og snúa við á miðri leið, komast inn í Listaháskólann en hætta við á síðustu stundu og prófa nokkrar greinar í hinum háskólanum án þess að mæta nokkurn tímann í lokaprófin, milli þess sem ég starði út í tómið eða fór á djammið.
Baunin í maganum mínum var aldeilis verkefni sem ég gæti einbeitt mér að til frambúðar!
Vinkona mín eignaðist barn á svipuðum tíma, og ég man að ég fór einu sinni í heimsókn til hennar þegar strákanir okkar voru bara nokkurra vikna gamlir. Vinkona mín sýndi mér Ipadinn sem þau voru nýbúin að kaupa. VÁ EN SNIÐUGT hugsaði ég. Við töluðum um hvað þetta væri næs með brjóstagjöfinni, að geta skrollað aðeins um internetið og tekið þátt í nútíma lífi án þess að þurfa að hafa tölvu ofan á barninu.
Jæja, snúður byrjaði að vaxa úr grasi og ekki leið á löngu þar til við skröpuðum saman fyrir svona Ipad. Pabbi hans gat notað hann í skólanum, við gátum tekið myndir og vídjó á hann, snúður gat horft á barnaefni eða spreytt sig á (afar þroskandi) tölvuleikjum.
Youtube var náttúrulega löngu komið til sögunnar, og þegar orðið uppfullt af myndskeiðum af öllu sem hægt er að ímynda sér og ekki ímynda sér. Á þessum tíma höfðu margir líka tekið sig til og byrjað að framleiða vandað efni fyrir börn.
„TuTiTu Toys come to life“, var t.d. fallegt og litríkt og dáleiðandi (á góðan hátt), meira að segja fyrir foreldrana. Önnur myndbönd kenndu snúðinum litina eða að telja, á meðan ég gat nælt mér í nokkrar mínútur af afar sjaldgæfum morgunsvefni.
Stuttu síðar fæddist okkur dóttir.
Ipadinn reyndist einmitt sérlega handhægur með brjóstagjöfinni (ég sko eignaðist ekki snjallsíma fyrr en fyrir tveimur árum). Langar setur í sófanum með blæðandi sár á geirvörtum urðu jafnvel bærilegri.
Lífið með tvö lítil börn var krefjandi, ekki síst þar sem við foreldrarnir vorum bæði í námi (og hljómsveit). Það var mikið að gera, við vorum blanka námsmannaklisjan holdi klædd, auk þess sem áföll dundu yfir innan fjölskyldunnar og við vorum stundum á hálfgerðum autopilot, að komast í gegnum hversdaginn. Sækja á leikskólann, versla í matinn, taka til, elda, ganga frá, hátta, svæfa, bugast. Endurtakið. Þið þekkið þetta!
Oft var fínt að geta rétt börnunum Ipadinn, meðan ég eldaði eða tók til (nú eða hékk sjálf í tölvunni eða starði út í tómið - ég viðurkenni það fúslega).
Þangað til dag einn.
BÚMM. Dóttir mín situr við eldhúsborðið og er að horfa á myndband af fullorðnum manni frá einhverjum smábæ í Hollandi sem er klæddur í Spiderman búning, að þykjast kúka á fullorðna konu í Elsu úr Frozen búning, sem þar að auki er að þykjast vera ólétt, og svo gubbar hún á kúkinn og svo mætir maður með jóker grímu og gyrðir niður um þau öll.
Hvað er ég búin að gera barninu mínu? Ég hef brugðist. Hún er skemmd til lífstíðar. Hugsaði ég. Ég er hræðilegt foreldri. Hvernig gat ég sofið svona á verðinum? BRENNUM ÞENNAN IPAD! BRENNUM ALLT!
Ég fékk semsagt áfall.
Ég var vissulega komin með mínar efasemdir um ágæti Youtube á þessum tímapunkti. Ég var búin að gera tilraunir til að taka það úr umferð og biðja nánustu ættingja að takmarka notkun þess með börnunum. En það var of seint.
Við tóku dagar, jafnvel vikur, af reglulegum, klukkutímalöngum öskrum yfir því að mega ekki horfa á Elsu og Spiderman. Þið sem þekkið dóttur mína ættuð að vita að hún er með úthald á við blettatígur og hljóðstyrk á við górilluhjörð, þegar svo ber undir.
Það hægðist um á endanum, en ef okkur varð það á að setja á eitthvað áhugavert Youtube myndband í tölvunni og hún kom auga á Elsu eða Spiderman vídjó í „suggestions“, þá vorum við komin beint aftur á byrjunarreit.
Ég reyndi ýmsar útgáfur af „restricted view“, „kids youtube“, hinar og þessar síur og ég veit ekki hvað og hvað. En ekkert af því virkaði í raun eða til lengdar, og eina lausnin var að gera heimilið (og heimili ömmu og afa o.s.frv.) alveg Youtube laust.
Nú, þið munið að ég á líka son sem er rúmum þremur árum eldri en dóttirin. Heili hans var þremur árum þroskaðri, og því ekki jafn útsettur fyrir þessum sturluðu Elsu og Spiderman vídjóum. Hann var ekkert sérstaklega sáttur við að mega ekki nota Youtube inni á heimilinu. Hann var auðvitað búinn að uppgötva að á Youtube er alls konar áhugavert og spennandi efni, og honum er treystandi upp að vissu marki til að láta ekki leiða sig út í einhverja vitleysu á internetinu.
Mér er samt sem áður mjög illa við að hann sé á Youtube eða svipuðum efnisveitum eftirlitslaus, því sama hversu vel ég kenni honum „umferðarreglur internetsins“ þá get ég ekki gert þá kröfu að hann haldi sig frá öllu á internetinu sem getur verið skaðlegt fyrir hann. Hvernig get ég krafist þess af honum ef að meira að segja ég læt stundum internetið leiða mig á slóðir sem ég hefði helst ekki viljað vita af?
Og hvernig, HVERNIG get ég ætlast til þess af honum, þegar ég veit að það eru einhver helvítis fífl einhversstaðar í Hollandi og mun víðar, sem munu ganga MJÖG LANGT til að græða á og manipjúlera börnin mín, með sinni fullkomlega útfærðu algóritmastrategíu, sem ég hef sjálf ekkert vit á hvernig virkar, og það inni á mínu eigin heimili?
Það er óþægilegasta tilfinning í heimi að geta ekki einu sinni tryggt öryggi barna sinna inni á sínu eigin heimili.
Við það bætist samviskubitið yfir að hafa brugðist, leyft börnunum að fá of mikinn „skjátíma“, að hafa ekki kennt þeim nógu vel að umgangast internetið og fylgjast ekki nógu vel með, og síðast en ekki síst, að hafa ekki verið nógu góð fyrirmynd þegar kemur að snjallsímum og tölvum.
Víkur nú sögunni að þessari Momo fígúru, sem foreldrar (líklega fyrst og fremst) hafa verið að deila og vara hvor aðra við.
Sprettur þá upp fólk sem vill ólmt bæta við samviskubiti: „díses foreldrar, lesið ykkur til um staðreyndir áður en þið deilið svona vitleysu og takið þátt í þessu hysteríska hæpi“.
Við þau, og ykkur öll, vil ég segja þetta:
Ég hef ekki mestar áhyggjur af þessari tilteknu fígúru. Mér er ekki í mun að vita nákvæmlega hversu mörg dauðsföll eða glataðar sálir má sannanlega rekja til hennar. Ég er ekki einu sinni viss um að þessi tiltekna fígúra myndi hræða mín börn eitthvað sérstaklega, þau hafa ábyggilega teiknað meira krípí fígúrur sjálf. Ég ákvað samt að deila þessu, sem eins konar ákalli um hjálp.
Staðreyndin er sú að Youtube er ekki öruggur staður fyrir börn. Þetta er aldeilis ekki eina dæmið um það. Ég, og margir aðrir foreldrar, erum nú þegar brennd af því að einhver kríp hafi komist inn í heila barna okkar. Hysterísk viðbrögð eru eðlileg þegar þú upplifir vanmátt og óttast um öryggi barna þinna.
Þannig að kæra fólk, í staðinn fyrir nota öll tækifæri sem gefast til að gera lítið úr foreldrum fyrir allt sem þeir gera þegar kemur að „skjánotkun“ sinna eigin barna, getum við þá frekar í sameiningu unnið að því að gera internetið að öruggari stað fyrir börn (og konur...alla)? Það er jú komið til að vera, og innan um allan viðbjóðinn er auðvitað rosalega mikið af uppbyggjandi, gagnlegu og skemmtilegu efni.
Aðstæður barna eru líka mismunandi. Á Íslandi þurfa flestir foreldrar að vinna fullt starf eða meira til að hafa í sig og á, margir eru einstæðir, sumir glíma við veikindi eða aðra erfiðleika. Sjálf er ég í ágætis stöðu eins og er, en mér fallast samt oft hendur og langar að grenja þegar kemur að Internetinu og öryggi barna minna. Hversdagslífið er nógu krefjandi fyrir.
Yfirleitt leggja samfélög sig fram um að vernda öll börn fyrir hættum - ekki bara sín eigin. Afhverju á það sama ekki við um internetið?
Ef ég hljóma eins og biturt, hysterískt og örmagna foreldri, þá er það vegna þess að það er einmitt það sem ég er.
Takk og bless.
0 notes
frettanetid · 6 years ago
Text
Hlustið á þessar eldri konur… þær gætu BREYTT lífi ykkar – MYNDBAND
http://frettanetid.is/hlustid-a-thessar-eldri-konur-thaer-gaetu-breytt-lifi-ykkar-myndband/?utm_source=dlvr.it&utm_medium=tumblr
0 notes
ulfhildur-blog · 7 years ago
Text
Nútíminn? Hvenær ætlar þú að poppa?
Myndin 9 to 5, með Lily Tomlin, Jane Fonda og Dolly Parton í aðalhlutverkum, kom út fyrir 37 árum síðan, 1980. Hvert höfum við þakast síðan þá, sérstaklega þegar horft er til hefðbundinna hlutverka kynjanna? Konur eru enn í dag, helstu umönnunnaraðilar landsins, konur eru ennþá helstu umsjónarmenn heimilisstarfa og innkaupa á heimilum sínum. Konur eru enn að hella upp á kaffi fyrir aðra. Bara í dag uppliði ég aldursfordóma, kynjamisrétti og stöðluð hlutverk kynjanna allt í einni bendu. Ég var í sakleysi mínu að sinna þægilega skrifstofustarfinu mínu, þegar ég er ávörpuð unga kona, ekkert góðan daginn á þessum bæ, bara unga kona. Jæja gott og vel, maður sem er eldri en ég. Ég geri mér grein fyrir að ég sé ung kona og yngri hann, takk fyrir að benda samt á það. Ég get ekki aðstoðað manninn, og mér líður eins og heimskasta yngsta einstaklingi landsins fyrir vikið, þó að ég hafi alveg gefið honum rétt svar við hans fyrispurns. Svo áður en ég veit af er ég komin í það hlutverk að gefa manninum kaffi á meðan hann áreitir mig sem konu með niðrandi orðum.  Jæja, hvað voru aftur Violet og Doralee, persónur Lily Tomlin og Dolly Parton, að gera á skrifstofunni sinni í Nine to Five. Æ já, þær voru að færa körlum kaffi. Það er oft einblínt á karlremburnar, sem er mjög gott og mjög þarft. En ég held að of oft sé horft framhjá hluti kvenna í að stöðluðum hugmyndum um hlutverk kynjanna er við haldið. Getur verið að konur gefi körlum ekki næg tækifæri. Þeir eru bara ekkert glataðir í hefðbundnum kvennastörfum. Konur eru ekkert saklausar í jafnrétti kynjanna. Að mörgu leyti þurfa konur að gefa körlum meira tækifæri og jafnvel gera meiri kröfur til þeirra. Konur ekki æpa á karlinn ykkar fyrir að hafa sett vettlinginn pínulítið skakkt á barnið og gera lítið úr honum. Ekki skamma hann fyrir að hafa sett handklæðin og nærföt í þvottavélina á 40°, á þægilegu stillinguna. Og þó að hann kaupi eitthvað annað í búðinni en þú hefðir gert, so what. Ef maður fær eintóma gagnrýni, þá hefur maður væntanlega ekki mikinn áhuga að vera þátttakandi.  Hvernig væri bara að vera jafningjar?
0 notes
fyndnarmyndir · 4 years ago
Photo
Tumblr media
Einn að eilífu hópur fólks stóð á þrepum
0 notes
fyndnarmyndir · 5 years ago
Photo
Tumblr media
Í framtíðinni mynd af brosandi unga konu með örmum hækkað
0 notes
fyndnarmyndir · 5 years ago
Photo
Tumblr media
Afro Lady Baksýnisspegill af fólki sem situr í garðinum
0 notes
fyndnarmyndir · 4 years ago
Photo
Tumblr media
þú ert mjög falleg hópur fólks standa í verslun
0 notes
fyndnarmyndir · 5 years ago
Photo
Tumblr media
joe hvað ertu að gera mynd af nokkrum sitja á borðinu
0 notes
fyndnarmyndir · 5 years ago
Photo
Tumblr media
getur ekki eignast börn vinir á nóttunni
0 notes
fyndnarmyndir · 5 years ago
Photo
Tumblr media
þegar lyf ánægja í mynd af brosandi unga konu með textanum
0 notes
frettanetid · 8 years ago
Text
Hlustið á þessar eldri konur… þær gætu BREYTT lífi ykkar – MYNDBAND
http://frettanetid.is/hlustid-a-thessar-eldri-konur-thaer-gaetu-breytt-lifi-ykkar-myndband/?utm_source=dlvr.it&utm_medium=tumblr
0 notes
frettanetid · 8 years ago
Text
Hlustið á þessar eldri konur… þær gætu BREYTT lífi ykkar – MYNDBAND
http://frettanetid.is/hlustid-a-thessar-eldri-konur-thaer-gaetu-breytt-lifi-ykkar-myndband/?utm_source=dlvr.it&utm_medium=tumblr
0 notes