#hanastél
Explore tagged Tumblr posts
fyndnarmyndir · 4 years ago
Photo
Tumblr media
Tequila Sunrise Ung kona í drykkju glasi
0 notes
byanainigoolea · 7 years ago
Photo
Tumblr media
"Your flirt finds me out Teases the crack in me Smittens me with hope" #bjork #illustration #artwork #插图 #図 #삽화 #삽화 #アートワーク #艺术品 #爱 #愛 #애정 #love #heart #심장 #ハート #心 #surrealism #シュールレアリスム #超现实主义 #초현실주의 #Listaverk #Súrrealismi #cocktail #butterfly #hanastél #fiðrildi
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Nostra teymið
Nostra er nýtt veitingahús fyrir vandláta í miðborginni þar sem áhersla er lögð á ferskt, íslenskt hráefni framreitt að skandínavískum sið í bland við það besta úr franskri matargerð. Nostra er staðsettur á annarri hæð í Kjörgarði við Laugaveg 59 sem fengið hefur andlitslyftingu síðustu mánuði og er orðinn hinn glæsilegasti.
Hönnunarteymið Börk á heiðurinn af smekklegu útliti staðarins
Hönnunarteymið Börk á heiðurinn af smekklegu útliti staðarins þar sem dökkblár, svartur, gylltur, bleikur og grænn eru litir í fyrirrúmi. Teyminu hefur tekist að skapa lifandi umhverfi sem breytist ef því hvernig horft er á það.
Makríll
Á Nostra fá margslungnar samsetningar hráefna að njóta sín í fágaðri en líflegri framsetningu þar sem tilvísun í íslenska náttúru og hráefnissögu er áberandi. Yfirlýst markmið Nostra er að minnka matarsóun og nýta nærumhverfi og náttúru en matreiðslumenn sækja sér reglulega hráefni út í náttúruna auk þess að vera í góðu samstarfi við bændur víða um land.
Laxamagi
Á veitingastaðnum verður gróðurrými þar sem starfsmenn Nostra munu rækta matjurtir og krydd sem nýtist í matreiðsluna. Þá býður Artson, kokteilbar Nostra, gestum upp á spennandi hanastél í þægilegu umhverfi.
Carl Kristian Fredriksen og Einar Björn Guðnýjarson
Yfirmatreiðslumeistarar staðarins eru þeir Einar Björn Guðnýjarson og Carl Kristian Fredriksen. Einar er með efnilegri ungu matreiðslumönnum landsins. Hann hefur unnið víða hérlendis sem og erlendis og starfaði m.a. sem aðstoðaryfirkokkur á Dill; fyrsta Michelin-stjörnustað Íslands. Carl kemur frá Danmörku en hefur verið búsettur í New York síðastliðin fimm ár þar sem hann sá um að opna og reka tvo danska Aamanns veitingastaði. Hann hefur ennfremur starfað á hinum þekktu veitingastöðum Nimb Brasseri í Kaupmannahöfn og Estela í New York þar sem hann var yfirmatreiðslumaður.
Síðan skein söl
Aðrir matreiðslumenn eru Björn Á. Hansson og Sigurður Sigurðsson. Þjónar eru Árni Kristjánsson, Tómas B. Eggertsson og Björn C. Alexandersson.  Á Artson, kokteilbar Nostra eru þau Hrafnkell I. Gissurarson og Lára Kristinsdóttir sem ráða ríkjum og bjóða gestum upp á framandi og spennandi kokteila.  Þessir ásamt fjölmörgu hæfileikaríku starfsfólki sem hefur gæði veitingastaðarins að leiðarljósi.
Nostra er að minnka matarsóun og nýta nærumhverfi og náttúru en matreiðslumenn sækja sér reglulega hráefni út í náttúruna
Staður sem vert er að kíkja á og láta stjana við sig.
Fylgist með Nostra á facebook hér.
Heimasíða: www.nostrarestaurant.is
Myndir: aðsendar
#NostraRestaurant #Iceland #FineDining #veitingahús Nostra er nýtt veitingahús fyrir vandláta í miðborginni þar sem áhersla er lögð á ferskt, íslenskt hráefni framreitt að skandínavískum sið í bland við það besta úr franskri matargerð.
0 notes