Tumgik
#IPOActionPlan
nasdaqiceland · 9 years
Photo
Tumblr media
Undir lok árs 2014 gaf Kauphöllin út skýrslu með tillögum um aukna virkni og gagnsemi íslensks verðbréfamarkaðar, sjá http://www.nasdaqomx.com/ipo-action-plan-iceland . Í skýrslunni voru lagðar til 10 aðgerðir sem eru til þess fallnar að annarsvegar að auðvelda fyrirtækjum leiðina á markað sem og veru þar, og hinsvegar aðgerðir til að glæða áhuga fjárfesta á verðbréfamarkaði. Við ætluðum að vera búin að ljúka verkefnunum 10 á einu ári - þeim er kannski ekki lokið, en þó hefur orðið góð hreyfing á málunum. Á þessari mynd má sjá hvernig staðan er á einstökum verkefnum. Við munum halda áfram að gera okkar besta til að koma öllum verkefnunum í höfn. 
0 notes