#daði einarsson
Explore tagged Tumblr posts
Text
youtube
Producing dragon battles in a realistic way is one of the most technologically complex things which goes into house pf the dragon.
#game of thrones#house of the dragon#vfx#dragons#visual production#pixomondo#pxo#james thompson#daði einarsson#atahan tuğra kiltan#jillian sanders#ród smoka#дім дракона#la maison du dragon#龙之家族#juego de tronos#a guerra dos tronos#a casa do dragão#la casa del dragón#آل التنين#ड्रैगन का घर#haus des drachen#ejderha evi#gia tộc rồng#isang kanta ng yelo at apoy#하우스 오브 드래곤#lohikäärmeen talo#ڈریگن ہاؤس#হাউস অফ দ্য ড্রাগন#дом дракона
0 notes
Video
vimeo
Ásgeir - Snowblind from Erlendur Sveinsson on Vimeo.
Taken from new album 'Time On My Hands' out on October 28th
Pre-order the album: asgeir.lnk.to/timeonmyhands
Follow Ásgeir online: Facebook: facebook.com/asgeirmusic Instagram: instagram.com/asgeirmusic Twitter: twitter.com/asgeirMusic Website: asgeirmusic.com
Follow One Little Independent Records: Facebook: facebook.com/olirecords/ Instagram: instagram.com/onelittlein... Twitter: twitter.com/olirecords Website: olirecords.com/
Credits: Features: Guy Conan Stewart, Vilhjálmur Valtýr Kristjánsson, Tanya Sleiman, Clementine Lucia Sinis, Sara Lind Finnsdóttir & Ásgeir Trausti Einarsson Director: Erlendur Sveinsson Producer: Hanna Björk Valsdóttir Cinematographer: Anna Smoroňová, ASK Editor: Jonas Thorhallsson Visual effects: Jakob Thorhallsson Colour: Marina Starke Costume designer: Sigrún Ásta Jörgensen Make-up & hair: Sunna Björk Erlingsdóttir 1st AD: Guðný Rós Þórhallsdóttir Steadicam Operator: Jonas Thorhallsson 1st AC: Eva Rut Hjaltadóttir 2nd AC: Andri Fannar Kjartansson Gaffer: María Rún Jóhannsdóttir Key grip: Hákon Hjartarson Grip: Matthías Schram PA: Hjördís Jóhannsdóttir & Kári Úlfsson Thanks to: Ríkharður Hjartar Magnússon, Daði Sævar Sólmundarson, Ingibjörg Friðriksdóttir, Gunnar Bragi Jónsson, Jón Sigurðsson, Bragi Valdimar Skúlason, Sigurður Guðmundsson & Landsvirkjun Sponsors: Icelandair, Akkeri Films, One Little Independent, Klaki, Kaffitár & Kukl
0 notes
Text
Þriðjudaginn 21. febrúar voru veitt verðlaun fyrir hið firnasterka Nóa Síríus mót 2017. Í tengslum við það fór fram sjö umferða lauflétt hraðskákmót.
Það var allvel mætt í stúkuloft Breiðabliksvallar þetta þriðjudagskvöld. Skemmtileg blanda af reyndum meisturum og ungum og efnilegum skákmönnum. Grjóthörðum. Það er alveg ljóst að ekkert bætir menn meira í skákinni en að tefla við sér sterkari andstæðinga. Það sást glögglega í þessu móti. Hinir ungu skákmenn gáfu ekki þumlung eftir og hlaut margur meistarinn skráveifu. En hei, hvað með það – eins og einhver sagði. Skák er einmitt svona skemmtileg, vegna þess að hún brúar kynslóðabilið og það er mikið um óvænt úrslit. Það eru allir jafnir við upphaf tafls og ungum mönnum fer hratt fram ef þeir halda sig við efnið og já, fá tækifæri til þess að tefla við sér sterkari. Með hinum rifjast upp sá tími þegar þeir stóðu vart fram úr hnefa en áttu í fullu tré við eldri og reyndari. Annars er aldur afstæður eins og við vitum og það sannast vel í manntafli.
Eftir harða en sanngjarna baráttu í hraðskákinni, stóð Helgi Áss Grétarsson uppi sem sigurvegari mótsins eftir að Jóhann Hjartarson hafði verið í forystu lengst af. Í síðustu umferð náði Benedikt Jónasson að leggja Jóhann að velli en Helgi sigraði Þröst Þórhallsson.
Röð efstu manna varð þessi: 1, sæti Helgi Áss Grétarsson með 6 vinninga, 2. varð Jóhann Hjartarson með fimm og hálfan. Jafnir í 3.-6. sæti urðu Þröstur Þórhallsson, Andri Áss Grétarsson, Benedikt Jónasson og Björn Hólm Birkisson.
Lokaröð keppenda má finna hér: http://chess-results.com/tnr265009.aspx?lan=1&art=1&wi=821
Að loknu móti voru veitt verðlaun fyrir hraðskákina en svo var komið að aðal dagskrárlið kvöldsins – nefnilega verðlaunaafhending fyrir Nóa Síríus mótið 2017.
Nóa Síríus mótinu hafa verið gerð góð skil annars staðar, en það þótti með eindæmum vel heppnað í ár enda ekki við öðru að búast þegar snillingar eins og Jón Þorvaldsson og Halldór Grétar Einarsson taka höndum saman.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra var aðstandendum til halds og trausts við afhendingu verðlaunanna.
B-flokkur
1.-2. sæti Hörður Aron Hauksson (peningaverðlaun) 1.-2. sæti Jón Trausti Harðarson (peningaverðlaun) 3. sæti Stephan Briem (skákbókarúttekt) Unglingaverðlaun 14 ára og yngri Óskar Víkingur Davíðsson (skákbókarúttekt)
Heiðursverðlaun
Friðrik Ólafsson (gjafakarfa)
Endurkomuverðlaun
Björn Halldórsson (gjafaveski) Jón Hálfdánarson (gjafaveski)
Sagan um Friðrik og Vilhjálm
Jón Hálfdánarson notaði tækifærið og þakkaði mótshöldurum fyrir skemmtilegt mót með óvenjulegri umgjörð – það hefði verið gaman að koma aftur að skákinni með þessum hætti eftir langt hlé. Jón sagði í framhaldinu skemmtilega sögu sem góður rómur var gerður að. Friðrik bætti við söguna á stöku stað, auk þess sem ritari leitaði heimilda. Til gamans fer þessi saga hér á eftir.
Jón sagði að í uppvexti sínum á 6. áratugnum hefði landinn helst barið sér á brjóst fyrir tvö stórvirki. Hið fyrra var þegar Friðrik vann stórmótið í Hastings 1955-56 ásamt Korchnoi, hið síðara var afrek Vilhjálms Einarssonar þegar hann tók silfur í þrístökki í nóvember 1956, í Melbourne, tæpu ári síðar.
Það hefði verið sérstaklega skemmtilegt að fá tækifæri til þess að glíma við Friðrik, því auðvitað var það hann sem dró skákvagninn og hvatti landann til dáða. Jón minntist þess, að skákin hefði með afrekum Friðriks notið velvilja landsmanna. Til dæmis hefðu nokkrir einstaklingar úr Stúdentaráði Háskólans tekið höndum saman og stofnað sjóð til þess að standa straum af ferðum Friðriks á mót erlendis. Meðal þessara framsýnu stúdenta voru Ólafur Haukur Ólafsson, læknir, Jón Böðvarsson, skólameistari og Njálufræðingur og Sverrir Hermannsson, síðar ráðherra og seðlabankastjóri. Sjóðurinn var kallaður Friðrikssjóður og munaði nokkuð um hann.
Þó var það þannig að fyrir áskorendamótið 1959 í Júgóslavíu, þar sem teflt var á þremur stöðum, Bled (Slóveníu), Zagreb (Króatíu) og Belgrad (Serbíu), æxluðust mál þann veg að að ekki var nóg í sjóðnum til þess að standa straum af aðstoðarmanni Fyrir Friðrik. Þá bárust böndin að SÍ að sjá um fjármögnun en þar hringlaði í kassanum. Þá voru góð ráð dýr. Það fór svo að kvisast út að Friðrik fengi ekki aðstoðarmann með sér á þetta mikilvæga, langa og stranga mót. Það var svo áhugamaður einn, Pétur Halldórsson sjómaður, sem tók sig til og hringir í Ólaf Thors og segir honum allt af létta. Ólafur sem var mikill skákáhugamaður og einn af stofnendum TR og var í stjórn félagsins fyrstu árin, var mjög vel kunnugur skákmálum. Eftir að Pétur talar við Ólaf, hringir Ólafur í Friðrik og spyr hvernig málin stæðu. Þegar hann fregnaði það frá fyrstu hendi að ekki væri útlit fyrir að Friðrik gæti haft með sér aðstoðarmann, hugsaði Ólafur sig um, hummaði aðeins og sagði svo: “Það er nefnilega það. Það getur ekki verið stórt vandamál, ef hægt er að senda mann alla leið til Ástralíu til þess eins að hoppa þar eins og kengúra, þá hlýtur að vera hægt að senda mann til Júgóslavíu”. Ekki svo að skilja að Ólafur væri að gera lítið úr afrekum Vilhjálms, en gat ekki stillt sig um að taka svo til orða. Ólafur spurði svo Friðrik hvort hann kysi frekar að það færi fram söfnun, eða að styrkurinn færi á fjárlög. Friðrik var hlynntari síðari kostinum.
Það leit svo út fyrir að Ingi R. Jóhannsson kæmist ekki með og því fékk Friðrik Austur-þýska stórmeistarann, Klaus Viktor Darga til liðs við sig. Þegar til kom, hafði Ingi R. tök á því að komast með og upphæðin var næg til að standa straum af kostnaði beggja. Friðrik hafði því tvo aðstoðarmenn með sér út til Júgóslavíu til þessa 28 umferða ofurmóts þar sem Tal sigraði og vann sér inn rétt til þess að skora á heimsmeistarann, Botvinnik. Tal varð svo heimsmeistari 1960 eins og skákáhugamenn vita.
Alþjóðamótið í Hastings 1955 – 1956
Áskorendamót FIDE í Bled, Zagreb og Belgrad 1959
Sérstök verðlaun
Sérstök verðlaun fyrir sigur á æfingamóti Taflfélags Reykjavíkur árið 1967 voru veitt fjármálaráðherranum sjálfum, Benedikt Jóhannessyni. Hann er sterkur skákmaður og þótti afar efnilegur uns hann sneri sér að öðrum hugðarefnum og hugaríþróttum. Við setningu mótsins hafði það einmitt komið í ljós, að Benedikt hafði aldrei fengið bókarverðlaun afhent fyrir téðan sigur. Jón Þorvaldsson bætti úr þessu 50. árum síðar og Friðrik Ólafsson afhenti Benedikt fyrir Jóns hönd vandaða bók um snillinginn frá Riga, Mikhail Tal.
#gallery-0-9 { margin: auto; } #gallery-0-9 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 50%; } #gallery-0-9 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-9 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Kvennaverðlaun
Lenka Ptacnikova (gjafakarfa)
Sérstök þroskaverðlaun
Benedikt Jónasson (gjafakarfa)
Skákmeistari Breiðabliks
Dagur Ragnarsson (bikar)
Unglingameistari Breiðabliks
Stephan Briem (bikar)
A-flokkur
1.-2. sæti: Daði Ómarsson (peningaverðlaun og gjafakarfa) 1.-2. sæti: Þröstur Þórhallsson (peningaverðlaun og gjafakarfa) 3.-4. sæti: Guðmundur Kjartansson (peningaverðlaun og gjafakarfa) 3.-4. sæti: Jón Viktor Gunnarsson (peningaverðlaun og gjafakarfa)
Skákstjóri hraðskákmótsins, eins og aðal mótsins var Vigfús Vigfússon sem stjórnaði af hnökralausri alúð og snilli.
Þar með lýkur umfjöllun um Nóa Síríus mótið 2017. Bakhjarli mótsins, Nóa Síríus, er kærlega þakkaður stuðningurinn og keppendum þátttakan og drengileg framganga.
Í mótsnefnd voru, auk prímusanna Jóns Þorvaldssonar og Halldórs Grétars Einarssonar, þeir Gunnar forseti Björnsson, Pálmi Ragnar Pétursson, Tómas Veigar Sigurðsson, Þorsteinn formaður Þorsteinsson og Vigfús Vigfússon.
Sjáumst að ári!
Myndaalbúm: Hraðskák og verðlaunaafhending
#gallery-0-10 { margin: auto; } #gallery-0-10 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 100%; } #gallery-0-10 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-10 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Hraðskákmót og lokahóf Nóa Síríus mótsins Þriðjudaginn 21. febrúar voru veitt verðlaun fyrir hið firnasterka Nóa Síríus mót 2017. Í tengslum við það fór fram sjö umferða lauflétt hraðskákmót.
2 notes
·
View notes
Text
Daði fyrir 40 árum.
Í haust eru 40 ár liðin síðan ég tók þátt í fyrstu málverkasýninguni, við sýndum saman í Ásmundarsal: Ég, Tumi Magnússon, Ásta B Ríkharðsdóttir og Sveinn S Þorgeirsson, við vorum ennþá í námi og allt frekar óráðið. Ég var á fullri ferð að finna leiðir út úr nýlistinni og var að mála yfir ljósmyndirnar, krumpuð konkret-ljóð og gera bækur sem helst hefði mátt kalla klessumálverk.
Daði 40 years ago.
This autumn, 40 years ago first since I participated in the art exhibition, we showed together in Ásmundarsalur: Me, Tumi Magnússon, Ásta B Ríkharðsdóttir and Sveinn S Þorgeirsson, we were still studying and all sill not established in our art. I was experimenting a lot; painting the photographs, crumpled concrete-poetry and making books that might have been called bad painting.
Tilraun með handmálaða ljósmynd. Experiment with a hand-painted photograph.
Tilraun með handmálaða ljósmynd. Experiment with a hand-painted photograph.
Krumpuð konkretljóð. Crumpled concrete-poetry.
Polaroid ljósmyndir frá heimilis vinnustofuni. Polaroid photographs from the home studio.
Uppsetning sýningarinnar; Einar Guðmundsson litlaskáld og Eggert Einarsson. Installation of the exhibition; Einar Guðmundsson, the poet and Eggert Einarsson.
Mynd frá opnuninni; Tumi Magnússon, Þórður Jakobsson og Daði. Photo from the opening; Tumi Magnússon, Þórður Jakopsson and Dadi.
Frá opnuninni: Hildur Hákonardóttir, Rúna Þorkelsdóttir og Níels Hafstein.From the opening: Hildur Hákonardóttir, Rúna Þorkelsdóttir and Níels Hafstein.
Frá opnunni, from the opening; Eggert Pétursson, Magnús V. Guðlaugsson ,Hildur Sigurbjörnssdóttir,Margrét Jónsdóttir Sólveig Aðalsteinsdóttir og tumi Magnússon
Úr Blöðunum. From the press.
Daði fyrir 40 árum. Daði 40 years ago. Daði fyrir 40 árum. Í haust eru 40 ár liðin síðan ég tók þátt í fyrstu málverkasýninguni, við sýndum saman í Ásmundarsal: Ég, Tumi Magnússon, Ásta B Ríkharðsdóttir og Sveinn S Þorgeirsson, við vorum ennþá í námi og allt frekar óráðið.
#art#art world#beauxarts#blog#contemporaryart#culture#icelandic#kunst#mixed media#myndlist#panting#photography#Prints#reykjavik
0 notes
Text
Fimmta umferð Skákhátíðar MótX var tefld þriðjudagskvöldið 6. febrúar. Þessi umferð var sú æsilegasta á mótinu hingað til, þrungin þvílíkri spennu og flækjum að við lá skammhlaupi í taugakerfum teflenda frammi fyrir agndofa áhorfendum.
A flokkur
Efstur fyrir umferðina var Suðurnesjamaðurinn geðþekki, Björgvin Jónsson, með 31/2 vinning en hann sat yfir að þessu sinni. Á efsta borði öttu stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Hjörvar Steinn Grétarsson kappi í rammaslag miklum. Jóhann tefldi byrjunin hratt og náði þannig forskoti á tíma er reyndist skipta máli þegar á leið. Eftir mannsfórn Jóhanns á g7 kom upp gríðarflókið tafl þar sem Hjörvar Steinn hafði tvo menn fyrir hrók en möguleikarnir voru svo margslungnir að erfitt var fyrir mennskan heila að tæma stöðuna. Hvortveggi fékk færi á að hrifsa til sín vinninginn en að lokum veitti Jóhann betur. Vel tefld skák en ekki hnökralaus.
Á öðru borði mættust stórmeistararnir og Huginskapparnir Hannes Hlífar og Þröstur Þórhallsson. Hannes, sem stýrði hvítu mönnunum, langhrókaði og náði sóknarfærum gegn kóngi svarts. Þröstur varðist þeim hótunum fimlega en upp kom að lokum endatafl þar sem veikleikarnir í kringum kóng svarts riðu baggamuninn.
Jón Viktor fékk snemma betra tafl og vann peð gegn Baldri sem varðist af útsjónarsemi en varð að játa sig sigraðan. Helgi Áss kom Halldóri Grétari á óvart í byrjun með óvenjulegri leikjaröð. Hann náði smám saman tökum á miðtaflinu og vann mann og þar sem Halldóri Grétari tókst ekki að tryggja frípeði sínu sæluvist í himnaríki 8. reitaraðarinnar voru örlög svarts ráðin. Jón L. fékk þægilegra tafl gegn Oliver, tefldi markvisst eins og hans er háttur og knúði fram sigur í endatafli.
Örn Leo tefldi af mikilli varfærni gegn Þorsteini Þorsteinssyni sem vann mann með lúmskri gildru. En Arnarljónið var ekki á því að láta í minni pokann heldur braust inn bakdyramegin hjá bóndanum á Steinastöðum og knúði fram jafntefli. Kristján Eðvarðsson lagði Bárð Örn laglega, Ingvar Þór sveið félaga sinn í Hugin, Sigurð Daða, peði yfir í endatafli og Vignir Vatnar sigraði Guðmund Halldórsson nokkuð snaggaralega.
TR-ingarnir Björn Þorfinnsson og Daði Ómarsson sættust á skiptan hlut og sömu sögu var að segja af Huginskempunum Ásgeiri og Lenku þar sem Ásgeir náði ekki að ryðja sér sigurbraut í örlítið betra endatafli.
Skákhátíð MótX – Úrslit 5. umferðar Nafn Stig Vinn. Úrslit Vinn. Nafn Stig GM Hjartarson Johann 2536 3 1 – 0 3 GM Gretarsson Hjorvar Steinn 2565 GM Stefansson Hannes 2523 2½ 1 – 0 3 GM Thorhallsson Throstur 2418 IM Gunnarsson Jon Viktor 2466 2½ 1 – 0 2½ Kristinsson Baldur 2185 FM Einarsson Halldor Gretar 2236 2½ 0 – 1 2½ GM Gretarsson Helgi Ass 2441 FM Johannesson Oliver 2277 2 0 – 1 2 GM Arnason Jon L 2457 IM Thorfinnsson Bjorn 2400 2 ½ – ½ 2 Omarsson Dadi 2275 FM Sigfusson Sigurdur 2228 2 0 – 1 2 FM Johannesson Ingvar Thor 2352 Johannsson Orn Leo 2200 2 ½ – ½ 2 FM Thorsteinsson Thorsteinn 2327 FM Stefansson Vignir Vatnar 2304 2 1 – 0 2 Halldorsson Gudmundur 2174 FM Asbjornsson Asgeir 2267 1½ ½ – ½ 1½ WGM Ptacnikova Lenka 2218 FM Ulfarsson Magnus Orn 2371 1½ – – + 1 FM Jonasson Benedikt 2248 CM Birkisson Bardur Orn 2190 1 0 – 1 1 Edvardsson Kristjan 2184 IM Jonsson Bjorgvin 2349 3½ ½ not paired IM Jensson Einar Hjalti 2336 2½ ½ not paired FM Ragnarsson Dagur 2332 0 ½ not paired
Áhugaverðar viðureignir í 6. umferð
Jóhann Hjartarson og Björgvin Jónsson eru efstir að fimm umferðum loknum með fjóra vinninga hvor. Í humáttina koma Hannes Hlífar, Helgi Áss og Jón Viktor sem situr yfir í 6. umferð. Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 19.30 verður baráttunni haldið áfram. Hannes Hlífar hefur þá hvítt á Jóhann Hjartarson en takist öðrum hvorum þeirra að sigra, nær sá forystu á mótinu fyrir 7. og síðustu umferðina. Á öðru borði mun reyna á þrætubækur skákfræðanna þar sem Helgi stýrir hvítu mönnum gegn Björgvini. Sjá aðrar viðureignir hér:
Skákhátíð MótX – Viðureignir 6. umferðar 13. febrúar Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig GM Stefansson Hannes 2523 3½ 4 GM Hjartarson Johann 2536 GM Gretarsson Helgi Ass 2441 3½ 4 IM Jonsson Bjorgvin 2349 GM Arnason Jon L 2457 3 3 FM Johannesson Ingvar Thor 2352 GM Thorhallsson Throstur 2418 3 3 FM Stefansson Vignir Vatnar 2304 FM Thorsteinsson Thorsteinn 2327 2½ 2½ FM Einarsson Halldor Gretar 2236 Omarsson Dadi 2275 2½ 2½ Johannsson Orn Leo 2200 Kristinsson Baldur 2185 2½ 2 FM Johannesson Oliver 2277 Edvardsson Kristjan 2184 2 2 FM Jonasson Benedikt 2248 WGM Ptacnikova Lenka 2218 2 2 Halldorsson Gudmundur 2174 FM Ragnarsson Dagur 2332 ½ 1 CM Birkisson Bardur Orn 2190 GM Gretarsson Hjorvar Steinn 2565 3 not paired IM Gunnarsson Jon Viktor 2466 3½ not paired IM Thorfinnsson Bjorn 2400 2½ not paired FM Ulfarsson Magnus Orn 2371 1½ not paired IM Jensson Einar Hjalti 2336 3 not paired FM Asbjornsson Asgeir 2267 2 not paired FM Sigfusson Sigurdur 2228 2 not paired
Hvítir hrafnar
Lítið var flogið í Hrafnabjörgum í 4. umferð. Kapparnir Jónas Þorvaldsson og Friðrik Ólafsson sættust á skiptan hlut en skákir Braga Halldórssonar gegn Jóni Þorvaldssyni og Björns Halldórssonar gegn Júlíusi Friðjónssyni verða tefldar 13. febrúar.
B flokkur
Gauti Páll, sem hafði unnið allar fjórar skákir sínar, mætti Agnari Tómas Möller í fimmtu umferð. Úr varð hörku skák. Agnar Tómas tefldi byrjunina mjög vel og í eftirfarandi stöðu þurfti Gauti Páll að láta mann fyrir tvö peð:
27. – Bxe5 28.fxe5 Rxe5 29.De2 Rc4 30.Bg5.
Í tímahrakinu náði Gauti Páll að slá til baka og í þesari stöðu átti hann rothögg:
39. – Hf2!!
En í stað þess kom 39. – f5 40.Rd4 Hc4? (hérna var aftur hægt að leika Hf2 eða Rg4+ með þráskák) 41.Df4 og liðsyfirburðir hvíts skiluðu honum öruggum sigri.
Á öðru borði tefldu Blikarnir Birkir Ísak og Stephan Briem vel. Birkir ísak hafði betur að þessu sinni og hefur unnið fjórar skákir í röð. Siguringi heldur áfram með gott mót og sigraði Björn Hólm örugglega.
Sigurður Freyr var með mun betri stöðu gegn Hilmi Frey þegar maður datt í hafið og þrátt fyrir álitlega sókn sem fylgdi í kjölfarið þá héldu varnir Hilmis og hann sigldi vinningnum örugglega í höfn.
Úrslit í B-flokki í 5.umferð Nafn Stig Vinn. Úrslit Vinn. Nafn Stig Moller Agnar T 1925 3 1 – 0 4 Jonsson Gauti Pall 2161 Johannsson Birkir Isak 1760 3 1 – 0 3 Briem Stephan 1890 Sigurjonsson Siguringi 2034 3 1 – 0 2½ Birkisson Bjorn Holm 2084 Jonatansson Sigurdur Freyr 1642 2½ 0 – 1 2½ CM Heimisson Hilmir Freyr 2136 Mai Aron Thor 2066 2½ 1 – 0 2½ Davidsson Oskar Vikingur 1854 Mai Alexander Oliver 1970 2½ 1 – 0 2½ Omarsson Kristofer 1744 Sigurdsson Birkir Karl 1934 2½ 1 – 0 2½ Luu Robert 1680 Halldorsson Kristjan 1889 2½ 0 – 1 2½ Ulfsson Olafur Evert 1784 Sigurdarson Alec Elias 1373 2 + – – 2 Einarsson Oskar Long 1785 Davidsson Stefan Orri 1280 2 0 – 1 2 Heidarsson Arnar 1592 Birkisdottir Freyja 1483 1½ ½ – ½ 2 Alexandersson Orn 1366 Briem Benedikt 1464 1½ 0 – 1 1½ Eliasson Kristjan Orn 1846 Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 1½ + – – 1 Hilmarsson Andri Steinn 1606 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096 1 0 – 1 1 Gudmundsson Gunnar Erik 1491 Steinthorsson Birgir Logi 1080 1 – – + 1 Johannsson Hjortur Yngvi 1472 Haile Batel Goitom 1421 ½ + – – ½ Karlsson Isak Orri 1307 Jonsson Olafur Gisli 1856 2 ½ not paired
Eftir fimm umferðir eru fjórir skákmenn jafnir og efstir með fjóra vinninga: Gauti Páll, Siguringi, Birkir Ísak og Agnar Tómas.
Margar spennandi viðureignir verða í sjöttu umferð:
Round 6 on 2018/02/13 at 19:30 Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig Johannsson Birkir Isak 1760 4 4 Sigurjonsson Siguringi 2034 Jonsson Gauti Pall 2161 4 3½ Mai Alexander Oliver 1970 CM Heimisson Hilmir Freyr 2136 3½ 4 Moller Agnar T 1925 Ulfsson Olafur Evert 1784 3½ 3½ Mai Aron Thor 2066 Sigurdarson Alec Elias 1373 3 3½ Sigurdsson Birkir Karl 1934 Heidarsson Arnar 1592 3 2½ Jonsson Olafur Gisli 1856 Birkisson Bjorn Holm 2084 2½ 2½ Omarsson Kristofer 1744 Alexandersson Orn 1366 2½ 2½ Halldorsson Kristjan 1889 Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 2½ 2½ Davidsson Oskar Vikingur 1854 Eliasson Kristjan Orn 1846 2½ 2½ Jonatansson Sigurdur Freyr 1642 Luu Robert 1680 2½ 2 Einarsson Oskar Long 1785 Gudmundsson Gunnar Erik 1491 2 2 Davidsson Stefan Orri 1280 Johannsson Hjortur Yngvi 1472 2 2 Birkisdottir Freyja 1483 Haile Batel Goitom 1421 1½ 1 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096 Steinthorsson Birgir Logi 1080 1 ½ Karlsson Isak Orri 1307 Briem Stephan 1890 3 not paired Hilmarsson Andri Steinn 1606 1 not paired Briem Benedikt 1464 1½ not paired
Háspenna og Gordonshnútar í 5. umferð Skákhátíðar MótX Fimmta umferð Skákhátíðar MótX var tefld þriðjudagskvöldið 6. febrúar. Þessi umferð var sú æsilegasta á mótinu hingað til, þrungin þvílíkri spennu og flækjum að við lá skammhlaupi í taugakerfum teflenda frammi fyrir agndofa áhorfendum.
0 notes
Text
Fjórða umferð Skákhátíðar MótX var tefld þriðjudagskvöldið 30. janúar. Skákmenn kepptust við að þjarma hver að öðrum strax í byrjun með heimabrugguðum launráðum, fylkingum laust saman og vopnabrak mikið dundi um valinn. Svo mikið gekk á að leikjum var víxlað og ólöglegir leikir spruttu úr krumlum ráðvöndustu manna.
A flokkur
Efstir fyrir umferðina voru kempurnar Hjörvar Steinn Grétarsson, Björgvin Jónsson og Halldór Grétar Einarsson með tvo og hálfan vinning hver. Hjörvar Steinn sat yfir í fjórðu umferðinni en á efsta borði mættust forystusauðirnir Björgvin Jónsson og Halldór Grétar. Björgvin kom afar vel undirbúinn til leiks eins og hans er háttur, þann veg að Halldór Grétar, sem hafði leikið á als oddi á Skákhátíðinni fram að þessu, var skotinn niður með þeirri tegund lásboga er rýfur hverja brynvörn.
Á öðru borði mætti stórmeistarahrellirinn Þorsteinn Þorsteinsson Jóhanni Hjartarsyni. Úr varð hörkuskák þar sem allt virtist stefna í jafntefli þegar Þorsteinn hleypti taflinu upp á drottningarvæng. Reyndist upphlaup það feigðarflan hið mesta og laut hinn öflugi kappi Þorsteinn í dúk með brotinn boga og brostinn streng.
Þröstur Þórhallsson lagði Björn Þorfinnsson í vel útfærðri skák þar sem Þröstur fann réttu leiðina í vandasömu drottningarendatafli. Jón L var lengi vel með mun betra gegn Erni Leó og líklegast unnið á einhverjum stað en arnarljónið unga varðist af grimmd og hélt jöfnu. Meistarabaninn Baldur Kristinsson hélt uppteknum hætti og lagði hinn firnasterka fidemeistara Magnús Örn.
Mest gekk á í skák Huginskappanna Ingvars Þórs Jóhannessonar og Kristján Eðvarðssonar sem breyttist í örleikrit þegar á því harðasta stóð. Rétt eftir að Kristján lék jafnteflisstöðu niður í tapað tafl, henti það Ingvar Þór að leika ólöglegum leik. Gefum Ingvari orðið: „Ég veit ekki hvað ég hef teflt margar kappskákir, örugglega yfir 1.000, en þetta er í fyrsta skipti sem ég leik ólöglegum leik. Til að toppa þvæluna hefði ég getað verið sjúklega óheppinn. Ef það hefði ekki verið peð á f4, hefði ég orðið að bera drottninguna fyrir – snertur maður hreyfður! Þá hefði ég tapað „on the spot“ eins og maður segir. Það hefði nú verið meiri sagan!“
Önnur úrslit voru þau að Vignir Vatnar lagði félaga sinn úr TR, Benedikt Jónasson, sem var funheitur á Gestamótinu í fyrra en hefur ekki verið sjálfum sér líkur á þessu móti. Annað öflugt TR tvíeyki tókst á þar sem Daði Ómarsson lagði félaga sinn Bárð Örn Birkisson. Lenka náði loks vopnum sínum gegn Degi Ragnarssyni en Guðmundur Halldórsson og Oliver Jóhannesson skildu jafnir.
A-flokkur hjá Chess-Results
Skákhátíð MótX – 4. umferð í A-flokki Nafn Stig Vinn. Úrslit Vinn. Nafn Stig IM Jonsson Bjorgvin 2349 2½ 1 – 0 2½ FM Einarsson Halldor Gretar 2236 FM Thorsteinsson Thorsteinn 2327 2 0 – 1 2 GM Hjartarson Johann 2536 GM Thorhallsson Throstur 2418 2 1 – 0 2 IM Thorfinnsson Bjorn 2400 GM Arnason Jon L 2457 1½ ½ – ½ 1½ Johannsson Orn Leo 2200 Kristinsson Baldur 2185 1½ 1 – 0 1½ FM Ulfarsson Magnus Orn 2371 Halldorsson Gudmundur 2174 1½ ½ – ½ 1½ FM Johannesson Oliver 2277 FM Johannesson Ingvar Thor 2352 1 1 – 0 1 Edvardsson Kristjan 2184 FM Jonasson Benedikt 2248 1 0 – 1 1 FM Stefansson Vignir Vatnar 2304 Omarsson Dadi 2275 1 1 – 0 1 CM Birkisson Bardur Orn 2190 WGM Ptacnikova Lenka 2218 ½ 1 – 0 0 FM Ragnarsson Dagur 2332 GM Gretarsson Hjorvar Steinn 2565 2½ ½ not paired GM Stefansson Hannes 2523 2 ½ not paired IM Gunnarsson Jon Viktor 2466 2 ½ not paired GM Gretarsson Helgi Ass 2441 2 ½ not paired IM Jensson Einar Hjalti 2336 2 ½ not paired FM Asbjornsson Asgeir 2267 1 ½ not paired FM Sigfusson Sigurdur 2228 1½ ½ not paired
Stórmeistararimmur í 5. umferð
Alþjóðlegi meistarinn lögvísi, Björgvin Jónsson, er einn efstur að fjórum umferðum loknum með þrjá og hálfan vinning. Í humáttina koma tveir lögfróðir stórmeistarar og einn fasteignasérfræðingur: Jóhann Hjartarson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Þröstur Þórhallsson með þrjá vinninga hver. Þriðjudaginn 6. febrúar kl. 19.30 verður baráttunni haldið áfram. Björgvin situr yfir en tveimur efstu borðum verður stórmeistaraslagur af bestu gerð. Jóhann Hjartarson hefur hvítt á móti Hjörvari Steini og Hannes Hlífar, nýkominn að utan, stýrir hvítu mönnunum gegn Þresti Þórhallssyni. Sjá aðrar viðureignir hér:
Skákhátíð MótX – 5. umferð í A-flokki Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig GM Hjartarson Johann 2536 3 3 GM Gretarsson Hjorvar Steinn 2565 GM Stefansson Hannes 2523 2½ 3 GM Thorhallsson Throstur 2418 IM Gunnarsson Jon Viktor 2466 2½ 2½ Kristinsson Baldur 2185 FM Einarsson Halldor Gretar 2236 2½ 2½ GM Gretarsson Helgi Ass 2441 FM Johannesson Oliver 2277 2 2 GM Arnason Jon L 2457 IM Thorfinnsson Bjorn 2400 2 2 Omarsson Dadi 2275 FM Sigfusson Sigurdur 2228 2 2 FM Johannesson Ingvar Thor 2352 Johannsson Orn Leo 2200 2 2 FM Thorsteinsson Thorsteinn 2327 FM Stefansson Vignir Vatnar 2304 2 2 Halldorsson Gudmundur 2174 FM Asbjornsson Asgeir 2267 1½ 1½ WGM Ptacnikova Lenka 2218 FM Ulfarsson Magnus Orn 2371 1½ 1 FM Jonasson Benedikt 2248 CM Birkisson Bardur Orn 2190 1 1 Edvardsson Kristjan 2184 IM Jonsson Bjorgvin 2349 3½ not paired IM Jensson Einar Hjalti 2336 2½ not paired FM Ragnarsson Dagur 2332 0 not paired
Hvítir hrafnar
Þriðja umferð Hvítra hrafna var tefld 30. jan. Jónas Þorvaldsson lagði Björn Halldórsson með snaggaralegri kóngssókn, Friðrik Ólafsson og Bragi Halldórsson sættust á skiptan hlut eftir skammvinn vopnaviðskipti og Jón Þorvaldsson lét sverfa til stáls gegn Júlíusi Friðjónssyni sem hélt jöfnu á ystu nöf í langri skák.
Í fjórðu umferð Hvítra hrafna 6. feb. hefur Jónas Þorvaldsson hvítt gegn Friðriki Ólafssyni, Björn Halldórsson stýrir hvítum mönnunum gegn Júlíusi Friðjónssyni og Bragi Halldórsson hefur hvítt gegn Jóni Þorvaldssyni.
Hvítir hrafnar hjá Chess-Results
B flokkur
Gauti Páll hélt sínu striki og vann núna Aron Þór Mai. Er með hreint borð, kominn með vinningsforskot og þar að auki búinn að tefla við þann sem er í öðru sæti. Í öðru sæti er Siguringi Sigurjóns sem vann góðan sigur með svörtu á móti hinum efnilega Hilmi Frey Heimissyni. Jafnir Siguringa eru svo tveir efnilegir Breiðablikspiltar þeir Birkir Ísak og Stephan Briem. Birkir Ísak vann Kristján Örn Elíasson örugglega í fjórðu umferð, en Stephan sat yfir í skólabúðunum að Laugum í Sælingsdal.
Í B-flokknum keppa Blikar um Unglingameistaratitil Breiðabliks. Birkir Ísak vann 2014-15 en Stephan er núverandi meistari. Þeir tefla saman í næstu umferð og gæti sú skák gefið vísbendingu um næsta meistara. Annar hluthafi í öðru sætinu er Agnar Tómas Möller sem vann Óskar Long.
B-flokkur hjá Chess-Results
Skákhátíð MótX – 4. umferð í B-flokki Nafn Stig Vinn. Úrslit Vinn. Nafn Stig Jonsson Gauti Pall 2161 3 1 – 0 2½ Mai Aron Thor 2066 CM Heimisson Hilmir Freyr 2136 2½ 0 – 1 2 Sigurjonsson Siguringi 2034 Davidsson Oskar Vikingur 1854 2 ½ – ½ 2 Mai Alexander Oliver 1970 Ulfsson Olafur Evert 1784 2 ½ – ½ 2 Sigurdsson Birkir Karl 1934 Einarsson Oskar Long 1785 2 0 – 1 2 Moller Agnar T 1925 Omarsson Kristofer 1744 2 ½ – ½ 2 Halldorsson Kristjan 1889 Eliasson Kristjan Orn 1846 1½ 0 – 1 2 Johannsson Birkir Isak 1760 Birkisson Bjorn Holm 2084 1½ 1 – 0 1½ Birkisdottir Freyja 1483 Luu Robert 1680 1½ 1 – 0 1½ Briem Benedikt 1464 Jonsson Olafur Gisli 1856 1 1 – 0 1 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096 Heidarsson Arnar 1592 1 1 – 0 1 Steinthorsson Birgir Logi 1080 Gudmundsson Gunnar Erik 1491 1 0 – 1 1 Sigurdarson Alec Elias 1373 Alexandersson Orn 1366 1 1 – 0 1 Johannsson Hjortur Yngvi 1472 Davidsson Stefan Orri 1280 1 1 – 0 ½ Haile Batel Goitom 1421 Karlsson Isak Orri 1307 ½ 0 – 1 ½ Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 Hilmarsson Andri Steinn 1606 0 1 bye Briem Stephan 1890 2½ ½ not paired Jonatansson Sigurdur Freyr 1642 2 ½ not paired
Í fimmtu umferð spreytir Agnar Tómas Möller sig á því að reyna að stöðva Gauta Pál. Siguringi fær Björn Hólm og er sú skák mikilvæg fyrir báða aðila til að merkja sig í toppbaráttuna fyrir lokaátökin. Sjá aðrar viðureignir hér:
Skákhátíð MótX – 5. umferð í B-flokki Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig Moller Agnar T 1925 3 4 Jonsson Gauti Pall 2161 Johannsson Birkir Isak 1760 3 3 Briem Stephan 1890 Sigurjonsson Siguringi 2034 3 2½ Birkisson Bjorn Holm 2084 Jonatansson Sigurdur Freyr 1642 2½ 2½ CM Heimisson Hilmir Freyr 2136 Mai Aron Thor 2066 2½ 2½ Davidsson Oskar Vikingur 1854 Mai Alexander Oliver 1970 2½ 2½ Omarsson Kristofer 1744 Sigurdsson Birkir Karl 1934 2½ 2½ Luu Robert 1680 Halldorsson Kristjan 1889 2½ 2½ Ulfsson Olafur Evert 1784 Sigurdarson Alec Elias 1373 2 2 Einarsson Oskar Long 1785 Davidsson Stefan Orri 1280 2 2 Heidarsson Arnar 1592 Birkisdottir Freyja 1483 1½ 2 Alexandersson Orn 1366 Briem Benedikt 1464 1½ 1½ Eliasson Kristjan Orn 1846 Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 1½ 1 Hilmarsson Andri Steinn 1606 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096 1 1 Gudmundsson Gunnar Erik 1491 Steinthorsson Birgir Logi 1080 1 1 Johannsson Hjortur Yngvi 1472 Haile Batel Goitom 1421 ½ ½ Karlsson Isak Orri 1307 Jonsson Olafur Gisli 1856 2 not paired
Vopnaglamm og viðsjár miklar í fjórðu umferð Skákhátíðar MótX Fjórða umferð Skákhátíðar MótX var tefld þriðjudagskvöldið 30. janúar. Skákmenn kepptust við að þjarma hver að öðrum strax í byrjun með heimabrugguðum launráðum, fylkingum laust saman og vopnabrak mikið dundi um valinn.
0 notes
Text
Þriðja umferðin á Skákhátíð MótX, sem tefld var 23. janúar, bauð upp á hatramma baráttu á flestum borðum og óvenju marga afleiki þar sem jafnvel sómakærar drottningar féllu í öngvit og hröpuðu fyrir björg. Á efsta borði áttust við Jóhann Hjartarson og Björgvin Jónsson. Jóhann tefldi hvasst með hvítu og uppskar mun rýmri stöðu. Hann þjarmaði að Björgvin sem varðist með bakið upp við vegg allt þar til Jóhann varð sleginn skákblindu er hann hugðist beita laglegum lokahnykk en glataði drottningunni þess í stað bótalaust. Á öðru borði tókust Halldór Grétar og Guðmundur Halldórsson á í mikilli baráttuskák þar sem Guðmundur lék af sér manni með unna stöðu.
Björn Þorfinnsson og Jón L. tefldu stöðubaráttuskák þar sem Björn hafði betur með þungskeyttri kóngssókn. Björn hefur á undanförnum árum dempað sinn villta sóknarstíl með ágætis árangri en þarna ráku taktísk tilþrif smiðshöggið á skemmtilega skák. Kristján Eðvarðsson beitti frumlegri uppstillingu með hvítu gegn Þresti Þórhallssyni en Kristján hefur greinilega gengið í smiðju til Karens Movsziszian, hins geðþekka stórmeistara og liðsmanns Hugins. Þröstur var lengi að átta sig á stöðunni en smám saman tókst stórmeistaranum bæta sína stöðu og svo fór að hann hrósaði sigri eftir að Kristján lék af sér drottningunni í þröngri stöðu.
Þorsteinn Þorsteinsson og Daði Ómarsson áttust við í hörkuskák þar sem Þorsteinn lagðist þungt á árar og knúði fram sigur með óstöðvandi frípeði á c-línunni. Örn Leó Jóhannsson og Baldur Kristinsson tefldu alveg inn að beini og sömdu ekki fyrr en eftir mannfall mikið í liði hvorratveggju. Einar Hjalti lét ófriðlega með hvítu gegn Degi Ragnarssyni, fórnaði skiptamuni og uppskar sigur eftir grimmilega dalshríð að berskjölduðum kóngi Dags.
Vignir Vatnar tefdi frumlega með hvítu gegn Ásgeiri Ásbjörnssyni sem var fastur fyrir og djúpúðugur að vanda. Var samið um jafntefli þegar ljóst varð að hvorugum veitti betur í dýnamísku jafnvægi. Benedikt Jónasson hafði hvítt gegn Sigurði Daða. Benedikt tefldi byrjunina vel, átti sjallt gegnumbrot sem knúði Daða til að láta af hendi skiptamun til að halda lífi í skákinni. Upp kom görótt staða þar sem Benedikt uggði ekki að sér, tapaði manni bótalaust og þar með skákinni. Bárður Örn Birkisson og Lenka tefldu lengstu skák kvöldins þar sem Lenka hafði peði yfir í hróksendatafli en ungi maðurinn stóðst þolraunina og hélt jöfnu.
A-flokkur hjá Chess-Results
Spennandi viðureignir í 4. umferð
Efstir eftir þrjár umferðir eru Hjörvar Steinn, Björgvin Jónsson og Halldór Grétar með tvo og hálfan vinning hver. Þriðjudaginn 30. janúar kl. 19.30 verður baráttunni haldið áfram. Hjörvar Steinn situr yfir en á efsta borði reyna forystusauðirnir Björgvin og Halldór Grétar með sér. Sjá aðrar viðureignir hér:
Skákháíð MótX – 4. umferð Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig IM Jonsson Bjorgvin 2349 2½ 2½ FM Einarsson Halldor Gretar 2236 FM Thorsteinsson Thorsteinn 2327 2 2 GM Hjartarson Johann 2536 GM Thorhallsson Throstur 2418 2 2 IM Thorfinnsson Bjorn 2400 GM Arnason Jon L 2457 1½ 1½ Johannsson Orn Leo 2200 Kristinsson Baldur 2185 1½ 1½ FM Ulfarsson Magnus Orn 2371 Halldorsson Gudmundur 2174 1½ 1½ FM Johannesson Oliver 2277 FM Johannesson Ingvar Thor 2352 1 1 Edvardsson Kristjan 2184 FM Jonasson Benedikt 2248 1 1 FM Stefansson Vignir Vatnar 2304 Omarsson Dadi 2275 1 1 CM Birkisson Bardur Orn 2190 WGM Ptacnikova Lenka 2218 ½ 0 FM Ragnarsson Dagur 2332 GM Gretarsson Hjorvar Steinn 2565 2½ not paired GM Stefansson Hannes 2523 2 not paired IM Gunnarsson Jon Viktor 2466 2 not paired GM Gretarsson Helgi Ass 2441 2 not paired IM Jensson Einar Hjalti 2336 2 not paired FM Asbjornsson Asgeir 2267 1 not paired FM Sigfusson Sigurdur 2228 1½ not paired
Hvítir hrafnar
Tvær frestaðar skákir voru tefldar þriðjudagsdkvöldið 23. jan. Friðrik Ólafsson og Jón Þorvaldsson gerðu stutt jafntefli en Bragi Halldórsson vann Jónas Þorvaldsson í langri baráttuskák. Í þriðju umferð Hvítra hrafna 30. jan. hefur Jónas Þorvaldsson hvítt á Björn Halldórsson, Friðrik stýrir hvítum mönnunum gegn Braga Halldórssyni og Jón Þorvaldsson hefur hvítt gegn Júlíusi Friðjónssyni.
Hvítir hrafnar hjá Chess-Results
B-flokkurinn
Gauti Páll Jónsson teflir eins og sannur foringi í B-flokknum og vann sína þriðju skák þegar hann lagði Siguringa Sigurjónsson. Hann er einn efstur með fullt hús. Hilmir Freyr lagði Birki Karl með laglegum lokahnykkjum og ætlar sér örugglega að fylgja foringjanum fast eftir enda næstur honum í stigaröðinni.
Stórtíðindi urðu á 3ja borði þegar hinn efnilegi Stephan Briem vann góðan sigur á Birni Hólm. Tvíburabræðurnir hafa farið mikinn í íslensku skáklífi undanfarin ár og verið góðar fyrirmyndir sem sýna að ástundun er lykillinn að framförum. Stephan er að stimpla sig rækilega inn á meðal sterkustu ungu skákmannanna okkar, enda stundar hann skákina af krafti, er fullur einbeitningar á meðan á skákunum stendur, hógvær og með mikið keppnisskap.
Annað mikið efni er Aron Þór Mai en skákmenn virðast oft dafna best á meðal systkina. Aron Þór vann góðan sigur á reynsluboltanum Kristjáni Erni. Alexander Oliver, bróðir Arons Þórs, gerði svo gott jafntefli við Ólaf Evert.
Agnar Tómas og Kristófer tefldu hörkuskák. Kristófer vann peð og átti alla möguleika á því að vinna örugglega. En skákir vinnast ekki sjálfkrafa og Agnar Tómas náði sér í mótspil. Í kringum tímamörkin átti Agnar Tómas síðan leik sem hefði kallað á birtingu í skákdálkum blaðanna. En hann missti af honum og skákin endaði með þráskák Kristófers.
Í fjórðu umferð reynir Aron Þór að stöðva Gauta Pál. Á þriðja borði tefla ungstirnin Óskar Víkingur og Alexander Oliver. Augu margra munu svo beinast að sjötta borði þar sem félagarnir og skákpabbarnir Kristófer Ómarsson og Kristján Halldórsson munu ekki láta friðsamlega. Það er svo spurning hvort Freyja muni stríða Birni bróður sínum á áttunda borði. Annað uppgjör ungstirna verður á 9. borði á milli Róberts Luu og Benedikts Briem.
B-flokkur hjá Chess-Results
Skákhátíð MótX B-flokkur – 4. umferð Nafn Stig Vinn. Vinn. Nafn Stig Jonsson Gauti Pall 2161 3 2½ Mai Aron Thor 2066 CM Heimisson Hilmir Freyr 2136 2½ 2 Sigurjonsson Siguringi 2034 Davidsson Oskar Vikingur 1854 2 2 Mai Alexander Oliver 1970 Ulfsson Olafur Evert 1784 2 2 Sigurdsson Birkir Karl 1934 Einarsson Oskar Long 1785 2 2 Moller Agnar T 1925 Omarsson Kristofer 1744 2 2 Halldorsson Kristjan 1889 Eliasson Kristjan Orn 1846 1½ 2 Johannsson Birkir Isak 1760 Birkisson Bjorn Holm 2084 1½ 1½ Birkisdottir Freyja 1483 Luu Robert 1680 1½ 1½ Briem Benedikt 1464 Jonsson Olafur Gisli 1856 1 1 Sigfusson Ottar Orn Bergmann 1096 Heidarsson Arnar 1592 1 1 Steinthorsson Birgir Logi 1080 Gudmundsson Gunnar Erik 1491 1 1 Sigurdarson Alec Elias 1373 Alexandersson Orn 1366 1 1 Johannsson Hjortur Yngvi 1472 Davidsson Stefan Orri 1280 1 ½ Haile Batel Goitom 1421 Karlsson Isak Orri 1307 ½ ½ Gunnarsson Baltasar Mani Wedhol 1268 Hilmarsson Andri Steinn 1606 0 bye Briem Stephan 1890 2½ not paired Jonatansson Sigurdur Freyr 1642 2 not paired
Afleikir og atgangur harður í þriðju umferð Skákhátíðar MótX Þriðja umferðin á Skákhátíð MótX, sem tefld var 23. janúar, bauð upp á hatramma baráttu á flestum borðum og óvenju marga afleiki þar sem jafnvel sómakærar drottningar féllu í öngvit og hröpuðu fyrir björg.
0 notes
Text
Þá er vel heppnuðu Nóa Siríus móti 2017 lokið. Alls tóku 72 skákmenn á öllum aldri þátt og hefur mótið aldrei verið sterkara en í ár.
A-flokkur
Daði Ómarsson og Þröstur Þórhallsson eru sigurvegarar í A-flokki hins Nóa-Siríus mótsins firnasterka sem lauk á þriðjudagskvöldið í Stúkunni við Kópavogsvöll. Þröstur ætlaði sér greinilega sigur gegn Daða í úrslitaskák þeirra tveggja, mætti við alvæpni og brá bitru sverði á loft með óvæntum byrjunarleik. Daði, sem var með svart, lét þó engan bilbug á sér finna. Hann varðist fimlega að hætti Gunnars á Hlíðarenda þó að hann ætti í höggi við einn skæðasta sóknarskákmann landsins og hélt ró þegar mest lá við. Þegar jafntefli var samið var Daði líklega kominn með ögn vænlegra tafl en jafnteflisboð Þrastar kom á réttu andartaki. Með jafntefli þessu tryggðu þeir félagar sér sigur á mótinu með 5 vinningum hvor í sex umferðum. Glæsilega gert hjá þeim báðum. Þó að Daði sæti yfir í einni umferðinni, reyndist hann hærri í stigaútreikningi. Flestir skákmenn vita hvers Daði er megnugur en fáir áttu þó von á slíkri frammistöðu. Meðalstig andstæðinga Daða voru 2.432 og árangur hans mælist 2.798 stig sem er með því allra hæsta sem sést hefur hér á landi á síðustu árum. Þröstur getur einnig vel við unað. Hann tefldi af feiknarlegu öryggi og leyfði einungis tvö jafntefli, hið fyrra við Lenku í annarri umferð, hið seinna gegn Daða í þeirri síðustu, eins og áður sagði.
Á næst efsta borði gerðu lagasnillingarnir Jóhann Hjartarson og Björgvin Jónsson jafntefli í skák sem tefld var í botn. Jóhann virtist jafna taflið með svörtu eftir byrjunina og jafnvel fá aðeins betri stöðu í miðtaflinu. Björgvin tefldi hins vegar vel og undir lokin hafði hann peði meira í hróksendatafli en Jóhann var ekki í vandræðum með að halda jöfnu með virkum kóngi á miðju borði. Björgvin átti ágætt mót, taplaus en gerði jafntefli í fjórum skákum. Jóhann Hjartarson, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í kappskák og raunar hraðskák líka, tapaði fyrir Benedikt Jónassyni í fjórðu umferð og missti þar með möguleika á toppsæti. Benedikt fór á kostum í mótinu og það er alltaf gaman að fylgjast með Jóhanni enda sá stórmeistari okkar, auk Friðriks, sem náð hefur lengst á svarthvítu reitunum. Jóhann teflir ávallt ótrauður til sigurs og viðureignir hans einkennast af leikgleði og lítilli lognmollu – baráttu frá upphafi til enda.
Guðmundur Kjartansson sigraði Helga Áss Grétarsson í baráttuskák. Upp kom peðaendatafl þar sem báðir náðu að vekja upp drottningu, Guðmundur þó fyrr og það gerði gæfumuninn eftir að Helga hafði orðið á örlítil ónákvæmni. Mikill fengur að fá Helga að skákborðinu í þessu sterka móti og Guðmundur sýndi og sannaði enn hve þolgóður hann er þegar líða tekur á skákirnar, enda innbyrti hann flesta sína vinninga í endatöflum.
Skák Jóns Viktor Gunnarssonar og Björns Þorfinnssonar var flókin og tvísýn. Jón Viktor fórnaði að lokum manni og náði að leggja stjörnublaðamanninn og félaga sinn hjá TR að velli í tímahraki hins síðarnefnda. Þá lauk Þorsteinn Þorsteinsson ágætu móti með því að gera jafntefli með hvítu við stórmeistarann Jón L. Árnason í 32 leikjum. Skákin einkenndist af átökum um frumkvæðið en jafnvægið var þó ætið innan seilingar. Jón hrifsaði þó til sín peð í drottningarendatafli sem gerði það að verkum að Þorsteinn sá þann kost vænstan að þráskáka. Þorsteinn fór taplaus í gegnum mótið en var lengi í gang. Jón L. var einnig greinilega að komast í gamalkunnan gír eftir brösuga byrjun. Benedikt Jónasson sneri skemmtilega á Vigni Vatnar Stefánsson og Magnús Örn Úlfarsson tefldi vel gegn Halldóri Grétari Einarssyni og hafði sigur með laglegri mannsfórn:
Hvítt: Magnús Örn Úlfarsson Svart: Halldór Grétar Einarsson
Svartur lék síðast 13. – Bd7-e6? 13. – Hd8 hefði verið svarað með 14.e6! Bxe6 15.Bxc6+ bxc6 16.Rc7+ Kf8 17.Dxd8mát Skást var 13. – e6 eins og Sigurður Daði lék með góðum árangri í Danaveldi árið 2005. Hvítur fær þó góð færi fyrir peðið á e5 sem tapast ef hann teflir rétt!
14.Rxe7! Nú er 14. – Kxe7 svarað með 15.Dd6+ Ke8 16.Bxc6+ bxc6 17.Dxc6+ Ke7 18.Dd6+ Ke8 19.Bg5! og svartur er niðurbrotinn! 14. – b5 15.Rxc6 Dxa4 16.Dd2! og hvítur vann.
Önnur úrslit umferðarinnar má sjá hér. http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=2&rd=6&wi=821
#gallery-0-9 { margin: auto; } #gallery-0-9 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 50%; } #gallery-0-9 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-9 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Það var einstakur heiður að fá að hafa Friðrik Ólafsson meðal keppenda. Þó svo að þessi ljúfi baráttumaður sé kominn af léttasta skeiði, á hann enn létt með að stunda þessa göfugu hugarlist. Hann sér flestum lengra og ánægjan skín úr augunum þó svo að úthaldið sé kannski minna en það forðum var.
Þá var sérstaklega gaman að laða aftur að skákborðinu gamla meistara á borð við Jón Hálfdánarson og Björn Halldórsson. Það brá fyrir gömlum töktum hjá hvorum tveggja og þó svo að stríðsgæfan hafi kannski ekki fallið þeim í skaut í stöku umferð, er ljóst að báðir eiga fullt erindi í svona sterkt mót, þrátt fyrir áratuga langa fjarveru frá kappsskák. Er það von mótshaldara að þeir færist í aukana á hvítum reitum og svörtum í kjölfar mótsins.
Lokastaðan í A-flokki:
Daði Ómarsson og Þröstur Þórhallsson urður jafnir og efstir með 5 vinninga. Í þriðja til fjórða sæti komu TR-ingarnir Guðmundur Kjartansson og Jón Viktor Gunnarsson sem áttu báðir gott mót. Guðmundur, sem er nýbakaður Skákmeistari Reykjavíkur, er greinilega í mjög góðu formi um þessar mundir. Hann tapaði í næstsíðustu umferð fyrir Daða en náði öðru sæti með sigri á Helga Áss Grétarssyni í síðustu umferð. Jón Viktor tók yfirsetu í fyrstu tveimur umferðunum en hlaut þrjá og hálfan vinning úr fjórum tefldum skákum. Sannarlega góður árangur og ljóst að hann hefði mætt Daða ef sjöundu umferð hefði verið til að dreifa.
Lokastöðu má sjá hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=1&rd=6&wi=821
B-flokkur
Lokaumferðin í B-flokki var æsispennandi. Svo fór að lokum að félagarnir úr Fjölni, Hörður Aron Hauksson og Jón Trausti Harðarson urðu efstir og jafnir með 5 vinninga hvor en fast á hæla þeirra í 3. sæti kom Stephan Briem með 4,5 vinninga. Þessir þrír unnu sér þátttökurétt í A flokki að ári.
Úrslit umferðarinnar urðu með þessum hætti: http://chess-results.com/tnr257788.aspx?lan=1&art=2&rd=6&wi=821
Lokastaða í B-flokki http://chess-results.com/tnr257788.aspx?lan=1&art=1&rd=6&wi=821
Aðstandendur mótsins, Skákfélagið Huginn og Skákdeild Breiðabliks, þakka boðsgestum þátttökuna, ljúfa samveru og snjöll tilþrif. Eins og þátttökulistinn ber með sér, er greinileg spurn eftir móti sem þessu, móti sem hefur verið þróað frá upphafi og lagað að óskum skákmannanna sjálfra. Skákstjóri var Vigfús Vigfússon sem stjórnaði af sinni alkunnu alúð og vandvirkni og á hann miklar þakkir skildar fyrir gott starf.
Myndaalbúm 6. umferðar
#gallery-0-10 { margin: auto; } #gallery-0-10 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 100%; } #gallery-0-10 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-10 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Daði og Þröstur sigurvegarar á vel heppnuðu Gestamóti Hugins og Breiðabliks Þá er vel heppnuðu Nóa Siríus móti 2017 lokið. Alls tóku 72 skákmenn á öllum aldri þátt og hefur mótið aldrei verið sterkara en í ár.
0 notes
Text
Þröstur Þórhallsson sveið Benedikt Jónasson í drottningarendatafli eftir frumlega byrjun
Fimmta og næst síðasta umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á þriðjudagskvöldið, 7. febrúar. Eins og endranær var skákgleðin við völd. Úti var kolvitlaust veður og myrkur, ekki hundi út sigandi. Inni var ljós, þar ríkti friður. Yfir vötnum sveif angurvær andi Caissu og umlukti þá undursamlegu uppvakninga sem annað hvort ráfuðu um salarkynnin þar, eða sátu eins og steinrunnir undir álagahjúpi þeirrar gyðju sem sumir menn telja öðrum gyðjum ljúfari, betri og fegurri. Já, hún verður að teljast einstök, þessi innri ró sem menn finna þar sem skákmenn koma saman og skynja að fegurðinni og ástríðunni er deilt með öðrum.
Af A-flokki
Daði Ómarsson tefldi vel með hvítu mönnunum gegn nýbökuðum Skákmeistara Reykjavíkur, Guðmundi Kjartanssyni
Daði Ómarsson tefldi vel með hvítu mönnunum gegn nýbökuðum Skákmeistara Reykjavíkur, Guðmundi Kjartanssyni og hafði sigur. Þröstur Þórhallsson sveið Benedikt Jónasson í drottningarendatafli eftir frumlega byrjun, þar sem Benni taldi að hann myndi halda jöfnu en Þröstur hafði séð lengra. Jóhann Hjartarson sigraði Vigni Vatnar Stefánsson í skák þar sem stórmeistarinn fékk snemma mun betra tafl og sleppti aldrei tökunum á ungstirninu.
Höfðingjarnir, Jón L. Árnason og Björn Þorfinnsson, skildu jafnir þegar komið var út í hróksendatafl og ljóst að hvorugur komst lönd eða strönd. Þá vann Jón Viktor Gunnarsson góðan sigur á Guðmundi Gíslasyni í skák sem var bæði flókin og óljós langt fam eftir tafli. Helgi Áss Grétarsson tefldi eins og sá sem valdið hefur gegn Sigurbirni Björnssyni og vann. Þorsteinn Þorsteinsson var fyrstur að klára sína skák þegar hann sigraði hinn unga og efnilega Gauta Pál Jónsson nokkuð örugglega í snaggaralegri skák.
Jón L. Árnason og Björn Þorfinnsson skildu jafnir
Viðureign Dags Ragnarssonar og Friðriks Ólafssonar var frestað af óviðráðanlegum orsökum. Bolvíkingarnir Halldór Grétar Einarsson og Guðmundur Halldórsson háðu harða rimmu þar sem sá fyrrnefndi hrósaði happi eftir að Guðmundur virist fá betra út úr byrjuninni. Hrafn Loftsson og Sigurður Daði Sigfússon skildu jafnir þar sem mættust stálin stinn og Oliver Aron Jóhannesson hafði sigur á Kristjáni Eðvarðssyni með skæðri kóngssókn af gamla skólanum. Þá vann Bárður Örn Birkisson góðan sigur á Lenku Ptáchníkovu.
Upplýsingar um önnur úrslit umferðarinnar má finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=2&rd=5&wi=821
Þegar einungis ein umferð er ótefld, er staðan í A-flokki þessi:
Daði Ómarsson og Þröstur Þórhallsson eru jafnir og efstir með fjóran og hálfan vinning í fimm skákum. Við erum ekki óvön slíku frá stórmeistaranum, Þresti Þórhallssyni, en Daði Ómarsson hefur komið á óvart og teflt manna best á mótinu. Nú er ljóst að þessir tveir munu heyja hreina úrslitaviðureign í sjöttu og síðustu umferð. Vinningi færra en þeir félagar, með þrjá og hálfan, hafa Guðmundur Kjartansson, Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grétarsson, Björgvin Jónsson og Jón Viktor Grétarsson.
Stöðuna í A-flokki má annars finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=1&rd=5&wi=821
B-flokkur
Hörður Aron Hauksson og Jón Trausti Harðarson
Í B-flokki er ekki síður hart barist. Á topp borði varð efsti maður mótsins, Hörður Aron Hauksson, loks að láta í minni pokann þegar geysi sterkur Jón Trausti Harðarson sýndi klærnar. Oliver Alexander Mai gerði sér lítð fyrir og sigraði Agnar Tómas Möller nokkuð óvænt. Þá sigraði Stephan Briem, Óskar Víking Davíðsson sem verður að teljast til tíðinda. Hrund Hauksdótitr tapaði fyrir Ólafi Evert Úlfssyni, Róbert Luu sigraði Birki Ísak Jóhannsson og Jón Eggert Hallsson sigraði Svövu Þorsteindsóttur.
Önnur úrslit umferðarinnar má sjá ef meðfylgjandi krækju er fylgt: http://chess-results.com/tnr257788.aspx?lan=1&art=2&rd=5&wi=821
Staðan í B-flokki er þessi
Efstir og jafnir, með fjóra vinninga í fimm skákum, eru: Hörður Aron Hauksson, Alexander Oliver Mai og Jón Trausti Harðarson. Á hæla þeim með þrjá og hálfan vinning eru Stephan Briem, Ólafur Evert Úlfsson og Róbert Luu. Þar á eftir koma svo Ástralíufarinn, Birkir Karl Sigurðsson, Agnar Tómas Möller, Óskar Víkingur Davíðsson, Jón Eggert Hallsson, Gunnar Erik Guðmundsson, Örn Alexandersson og Halldór Atli Kristjánsson, allir með þrjá vinninga.
Það er deginum ljósara að hart verður barist í síðustu umferð sem tefld verður í Stúkunni við Kópavogsvöll á þriðjudaginn næsta. Allir skákáhugamenn eru hvattir til þess að líta við, taka skákpúlsinn margfræga, bergja á bleksvörtu kaffi í hvítri Stúku og finna þessa innri ró sem við skákmenn og -konur ein getum fundið. Komið fagnandi.
Myndaalbúm 5. umferðar
#gallery-0-5 { margin: auto; } #gallery-0-5 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 100%; } #gallery-0-5 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-5 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Daði og Þröstur efstir á Nóa Síríus-mótinu Fimmta og næst síðasta umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á þriðjudagskvöldið, 7. febrúar. Eins og endranær var skákgleðin við völd.
0 notes
Text
Halldór Grétar Einarsson vann Kristján Eðvarðsson í vel útfærðri skák
Þriðja umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á þriðjudagskvöld 24. janúar.
Í upphafi umferðar kvaddi Pálmi Ragnar Pétursson sér hljóðs fyrir hönd mótsstjórnar og bauð Friðrik Ólafsson sérstaklega velkominn til leiks. Pálmi sagði að Friðrik hefði verið með flensu í upphafi móts, en væri nú mættur og það væri fagnaðarefni. Það væri vissulega mikill heiður að því að hafa Friðrik meðal keppenda og til gamans mætti geta þess, fyrst teflt væri í þessu mannvirki, að þegar Friðrik var að gera garðinn frægan á 6. og 7. áratug síðustu aldar, þá gátu Íslendingar ekki státað af fótbolta- og handboltaliðum á heimsmælikvarða eins og nú væri. Friðrik greip þá inn í og sagði „að eftir 14-2 ósigurinn gegn Dönum, hefði verið sagt um Íslendinga að það sem þeir hefðu ekki í fótunum hefðu þeir í höfðinu!“.
Í tíð Friðriks voru þeir fáir landar vorir sem kepptu meðal þeirra bestu og voru sameiningartákn Íslendinga. Friðrik Ólafsson var sannarlega slíkt tákn. Þegar Friðrik tefldi, fylgdist íslenska þjóðin með. Í tilefni þess að Friðrik verður 82 ára á skákdaginn, 26. janúar, bað Pálmi skákmenn að rísa úr sætum og klappa honum lof í lófa.
Jón Hálfdánarson og Friðrik Ólafsson mættust síðast árið 1969
Að því búnu gaf Vigfús Vigfússon skákstjóri skákmönnum merki um að setja klukkurnar af stað. Friðrik settist til tafls á móti Jóni Hálfdánarsyni. Alveg eins og í gamla daga en þeir mættust síðast við taflborðið árið 1969. Hvað er hálf öld á milli vina.
Það fór vel á með þeim kempum eins og meðfylgjandi mynd sýnir og rétt eins og fyrir tæpum 50 árum, gerðu þeir félagar jafntefli.
Til gamans má benda á frábæran vef Skáksögufélagsins og vefsíðu til heiðurs Friðriki, fyrsta stórmeistara okkar Íslendinga. Á þessari síðu, má sjá umfjöllun um Skákþing Íslands 1969, þegar Friðrik og Jón mættust síðast: http://skaksogufelagid.is/1969-skakthing-islands/. Friðrik fór með sigur af hólmi á þessu móti með 9 vinninga í 11 skákum. Leyfði 4 jafntefli, þar af gegn Jóni Hálfdánarsyni. Áhugasamir geta rakið skákina sem er að finna neðarlega á síðunni.
Af A-flokki.
Dagur Ragnarsson og Guðmundur Kjartansson
Á efsta borði gerðu Dagur Ragnarsson og Guðmundur Kjartansson jafntefli eftir langa baráttuskák sem stóð fram á nótt. Skák Jóhanns Hjartarsonar og Andra Áss Grétarssonar var frestað. Björgvin Jónsson gerði jafntefli við Helga Áss Grétarsson í vel tefldri skák þar sem sá síðarnefndi var nær sigri.
Þröstur vann Sigurð Daða með svörtu í æsispennandi skák þar sem Sigurður Daði tefldi hvasst og fórnaði liði fyrir kóngssókn en Þröstur stóð af sér ágjöfina og landaði að lokum sigrinum. Björn Þorfinnsson sigraði Örn Leó nokkuð örugglega eftir að hafa unnið skiptamun snemma tafls.
Lenka Ptachnikova lá fyrir Magnúsi Erni Úlfarssyni og Mikael Jóhann Karlsson náði jafntefli gegn Fidemeistaranum og formanninum Þorsteini Þorsteinssyni eftir að sá síðarnefndi hafði verið með vinningsmöguleika. Þá gerðu TR-ingarnir Jón Viktor Gunnarsson og Benedikt Jónasson jafntefli í langri og flókinni skák þar sem Benedikt hafði að lokum hrók og tvö peð gegn hrók og riddara.
Benedikt Jónasson og Jón Viktor Gunnarsson
Nafnarnir og Vestfirðingarnir Guðmundur Halldórsson og Guðmundur Gíslason sigruðu báðir, Halldórsson lagði Ingvar Þór Jóhannesson nokkuð óvænt og Gíslason sigraði Baldur A. Kristinsson nokkuð örugglega. Þá gerði þriðji Vestfirðingurinn,
Halldór Grétar Einarsson, sér lítið fyrir og vann Kristján Eðvarðsson í vel útfærðri skák.
Björn Hólm Birkisson náði að hanga á jafntefli gegn Sigurbirni Björnssyni þar sem sigurlíkurnar voru greinilega hjá þeim síðarnefnda.
Upplýsingar um önnur úrslit umferðarinnar má finna hér: http://chess-results.com/tnr257789.aspx?lan=1&art=2&rd=3&wi=821
Staðan í A-flokki er þessi:
Efstir og jafnir með tvo og hálfan vinning að loknum þremur umferðum eru: Guðmundur Kjartansson (2468), Daði Ómarsson (2197), Björn Þorfinnsson (2404), Dagur Ragnarsson (2276), Þröstur Þórhallsson (2414), Magnús Örn Úlfarsson (2375). Tvo vinninga hafa Helgi Áss Grétarsson (2448), Vignir Vatnar Stefánsson (2404), Benedikt Jónasson (2208), Björgvin Jónasson (2340), Guðmundur Halldórsson (2204), Halldór Grétar Einarsson (2242), Bárður Örn Birkisson (2175), Guðmundur Stefán Gíslason (2332). Jóhann Hjartarson og Andri Áss eiga skák til góða en þeir eru báðir með einn og hálfan eftir tvær.
B-flokkur:
Agnar Tómas Möller og Róbert Luu
Í B-flokki vakti það mesta athygli, að hin unga og bráðefnilega skákkona Svava Þorsteinsdóttir, gerði jafntefli við stigahæsta mann flokksins, Jón Trausta Harðarson. Þá náði Róbert Luu jafntefli við Agnar Tómas Möller. Á öðrum borðum var einnig hart barist og hafði Birkir Karl Sigurðsson betur gegn Stephan Briem og Hörður Anton Hauksson vann sigur á Hrund Hauksdóttur. Óskar Víkingur Davíðsson og Ólafur Evert Úlfsson gerðu jafntefli.
Hvað önnur úrslit varðar, er vísað til meðfylgjandi krækju.
Staðan í B-flokki:
Efstir og jafnir með fullt hús eftir þrjár umferðir eru Birkir Karl Sigurðsson og Hörður Aron Hauksson. Á eftir þeim, með tvo vinninga, koma 14 skákmenn: Óskar Víkingur Davíðsson, Róbert Luu, Stephan Briem, Agnar Tómar Möller, Hrund Hauksdóttir, Stefán Orri Davíðsson, Svava Þorsteinsdóttir, Ólafur Evert Úlfsson, Benedikt Briem, Jón Eggert Hallsson, Gunnar Erik Guðmundsson, Jón Trausti Harðarson, Alexander Oliver Mai og Arnar Milutin Heiðarsson.
Fjórða umferð verður tefld þriðjudaginn 31. janúar og eru allir velkomnir í Stúkuna við Kópavogsvöll.
Myndaalbúm þriðju umferðar:
#gallery-0-5 { margin: auto; } #gallery-0-5 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 100%; } #gallery-0-5 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-5 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Nóa-Síríus mótið – 3. umferð Þriðja umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni á þriðjudagskvöld 24. janúar. Í upphafi umferðar kvaddi…
0 notes
Text
Önnur umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni í gærkvöldi. Teflt var fjörlega í báðum flokkum og ljóst að leikgleðin réð ríkjum. Vel úthugsaðar leikfléttur voru galdraðar fram og lævísar gildrur lagðar fyrir óvarkára.
Af A-flokki.
Á fyrsta borði, náði hinn ungi meistari, Örn Leó Jóhannsson, jafntefli gegn Jóhanni Hjartarsyni, stigahæsta skákmanni mótsins í spennandi skák. Stórmeistarinn var með svart og náði fljótlega að jafna taflið og ríflega það. Örn Leó lét af hendi skiptamun í tilraun til þess að blíðka goðin og fékk í kjölfarið vel teflandi stöðu með sterkan biskup á d4.
Hér lék Örn Leó 35. Hh4 og svo virtist sem hvítur væri að ná að máta svartan en Jóhann var vandanum vaxinn og lék eina varnarleiknum í stöðunni þrátt fyrir að eiga ekki nema nokkrar sekúndur eftir á klukkunni. 35. …f6 36. Dxf6 Df5+ 37. Dxf5 gxf5 38. Hf4 Hér hefði verið nákvæmara að leika (38. Hh5) og hvítur vinnur f peðið og er með einhverja vinningsmöguleika, þó svo svartur ætti að halda jöfnu með bestu taflmennsku. 38. … Hf7 39. g4 Nú leysist skákin upp í jafntefli. 39. … fxg4 40. Hxg4+ Kh7 41. Hh4+ Kg6 42. Hg4+ Kh7 Ef 42. …Kf5 þá 43. Hf4+ og svo skiptir hvítur upp á hrókum og drepur peðið á a7, líklega með unnu tafli. 43. Hh4+ Kg6 Og hér sættust keppendur á skiptan hlut.
Skák Friðriks Ólafssonar og Olivers Arons Jóhannessonar var frestað vegna veikinda. Halldór Grétar Einarsson lá fyrir Guðmundi Kjartanssyni sem fer vel af stað í mótinu. Lenka Ptácníková náði baráttujafntefli á móti Þresti Þórhallssyni en hún hafði staðið lakar langan hluta skákarinnar. Vel gert hjá Lenku. TR-ingarnir, Benedikt Jónasson og Björn Þorfinnsson, háðu mikla rimmu sem endaði með jafntefli eftir að þeir félagar höfðu skipst á að hafa betra lungann úr skákinni. Daði Ómarsson vann ungstirnið Vigni Vatnar og Jón Hálfdánarson sigraði Jóhann Ingvason í vel tefldri skák. „Nú dugði þrekið alla skákina“ sagði Jón að viðureigninni lokinni með tilvísan í fyrstu umferðina, þegar hann tapaði gegn Guðmundi Kjartanssyni eftir að hafa átt í fullu tré við alþjóðlega meistarann lengi tafls.
Ögmundur Kristinsson landaði jafntefli með hvítu gegn Jóni L. Árnasyni í langri baráttuskák. Fide meistararnir Þorsteinn Þorsteinsson og Ingvar Þór Jóhannesson slíðruðu sverðin snemma, meðan Magnús Örn náði að svíða Björn Halldórsson. Magnús hafði reyndar boðið Birni jafntefli rétt áður en hann fékk betra tafl en Björn heyrði það ekki og lék næsta leik eins og ekkert hefði í skorist. Hinn ungi Björn Hólm Birkisson vann góðan sigur á hinum þrautreynda Björgvini Víglundssyni. Björn Hólm var með svart og jafnaði taflið eftir byrjunina. Björn tefldi svo framhaldið af festu og staða Björgvins versnaði þar til eitthvað varð undan að láta í endataflinu.
Gauti Páll tefldi mjög vel gegn Sigurbirni Björnssyni og hélt jöfnu tafli alveg fram í endatafl, þegar hvor átti 4 peð auk biskups. Biskuparnir voru samlitir og Sigurbjörn náði að koma sínum peðum fyrir á gagnstæðum reitalit biskupunum meðan Gauti neyddist til að verja 3 peð með einum biskupi. Það var of mikið og Sigurbjörn hafði að lokum sigur. Kristján Eðvarðsson sigraði Guðlaugu Þorsteinsdóttur með snoturri fléttu, drottningarfórn sem Guðlaugu yfirsást.
Upplýsingar um önnur úrslit umferðarinnar má finna hér.
Staðan í A-flokki:
Efstir, með tvo vinninga af tveimur mögulegum, eru Guðmundur Kjartansson, Daði Ómarsson og Dagur Ragnarsson. Fast á hæla þeim, koma svo tíu sterkir skákmenn, Jóhann Hjartarsson, Þórhallsson Þröstur, Björn Þorfinnsson, Örn Leó Jóhannsson, Lenka Ptácníková, Helgi Áss Grétarsson, Andri Áss Grétarsson, Sigfússon Sigurður Daði, Benedikt Jónasson og Magnús Örn Úlfarsson.
B-flokkur:
Í B-flokki bar það helst til tíðinda, að Ólafur Evert Úlfsson náði jafntefli á efsta borði gegn Tómas Agnari Möller. Þá hafði Birkir Karl Sigurðsson betur gegn Jóni Eggerti Hallssyni í baráttuskák. Hinir ungu meistarar, Róbert Luu og Óskar Víkingur Davíðsson sættust á jafnan hlut. Þá vann Hörður Aron Hauksson sigur á Stefáni Orra Davíðssyni og stigahæsti maður flokksins, Jón Trausti Harðarson, hafði sigur á Ísaki Orra Karlssyni. Hrund Hauksdóttir vann Freyju Birkisdóttur en annars urðu úrslit í B-flokki með eftirfarandi hætti: http://chess-results.com/tnr257788.aspx?lan=1&art=2&rd=2&wi=821
Staðan í B-flokki:
Birkir Karl Sigurðsson, Hörður Aron Hauksson, Stephan Briem og Hrund Hauksdóttir hafa öll tvo vinninga eftir tvær umferðir. Þar á eftir koma 7 með einn og hálfan; Óskar Víkingur Davíðsson, Róbert Luu, Jón Trausti Harðarson, Birkir Ísak Jóhannsson, Agnar Tómas Möller, Ólafur Evert Úlfsson og Svava Þorsteinsdóttir.
Ljóst er að fjör fer að færast í leikinn í báðum flokkum. Þegar hefur verið parað fyrir næstu umferð og ljóst að margar áhugaverðar og spennandi viðureignir verða tefldar næsta þriðjudagskvöld í Stúkunni við Kópavogsvöll. Áhugasamir hvattir til þess að gera sér ferð í Kópavog. Heitt á könnunni sem endranær og bruðerí til þess að slá á spennuna.
Myndaalbúm:Önnur umferð
#gallery-0-5 { margin: auto; } #gallery-0-5 .gallery-item { float: left; margin-top: 10px; text-align: center; width: 100%; } #gallery-0-5 img { border: 2px solid #cfcfcf; } #gallery-0-5 .gallery-caption { margin-left: 0; } /* see gallery_shortcode() in wp-includes/media.php */
Önnur umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni í gærkvöldi Önnur umferð Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni í gærkvöldi. Teflt var fjörlega í báðum flokkum og ljóst að leikgleðin réð ríkjum.
0 notes