#Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema
Explore tagged Tumblr posts
Text
Keppnin um titilinn Framreiðslu-, og Matreiðslunemi ársins 2017 var haldin föstudaginn 22. september s.l. í Hörpu.
Eftirfarandi keppendur hrepptu titilinn Framreiðslu-, og Matreiðslunemi ársins 2017:
Sigurður Borgar og Axel Árni Herbertsson
Framreiðslunemar ársins 2017
Sigurður Borgar nemi á Radisson Blu Hotel Saga
Axel Árni Herbertsson nemi í Bláa lóninu
Hinrik Lárusson og Steinbjörn Björnsson
Matreiðslunemar ársins 2017
Hinrik Lárusson nemi á Radisson Blu Hotel Saga
Steinbjörn Marvin Björnsson nemi á Hörpu
Nú stefna þessir metnaðarfullir nemendur á að keppa fyrir Íslands hönd í Norrænu nemakeppninni sem fram fer í Kaupmannahöfn dagana 20. – 21. apríl 2018.
Fjölmargir gestir lögðu leið sína á keppnina til að fylgjast með okkar framtíðar fagmönnunum:
Dómarar í matreiðslu. F.v. Bjarni Siguróli Jakobsson, Helmut Müller, Guðmundur Guðmundsson, Bjarki Ingþór Hilmarsson og Trausti Víglundsson framreiðslumeistari fótóbombar með stæl
Myndir tók ljósmyndarinn Jón Svavarsson
Til hamingju Keppnin um titilinn Framreiðslu-, og Matreiðslunemi ársins 2017 var haldin föstudaginn 22. september s.l. í Hörpu…
#Axel Árni Herbertsson#Hinrik Lárusson#Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema#Norræna nemakeppnin#Sigurður Borgar#Steinbjörn Marvin Björnsson
0 notes
Text
Þessir hrepptu titilinn Framreiðslu-, og Matreiðslunemi ársins 2017 - Vídeó
Til hamingju
Nú um helgina fór fram úrslitakeppni nema í matreiðslu og framreiðslu um titilinn Framreiðslu-, og Matreiðslunemi ársins 2017. Keppnin var haldin í Hörpu. Keppnisfyrirkomulag Verkefni matreiðslunema var að matreiða forrétt, aðalrétt og eftirrétt fyrir níu einstaklinga. Í forrétt var íslenskt haustgrænmeti. Rétturinn mátti ekki innihalda mjólkurafurðir eða hnetur framreitt er af fati. Í aðalrétt…
View On WordPress
#Axel Árni Herbertsson#Hinrik Lárusson#Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema#Norræna nemakeppnin#Sigurður Borgar#Steinbjörn Marvin Björnsson
0 notes
Text
Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu í dag laugardaginn 23. september.
Þeir fimm keppendur sem munu keppa um titilinn Kokkur ársins 2017:
Víðir Erlingsson – Bláa Lónið
Rúnar Pierre Heriveaux – Grillið Hótel Saga
Garðar Kári Garðarsson – Deplar Farm / Strikið
Hafsteinn Ólafsson – Sumac Grill + Drinks
Bjarni Viðar Þorsteinsson – Sjávargrillið
Keppendur elda 3ja rétta matseðil úr svokallaðir leyni körfu sem þeir fengu að vita í gærkvöldi:
Forréttur Keppendur skulu nota heilan skötusel, fersk ígulker og ferska hörpuskel
Aðalréttur Keppendur útfæra sína 2017 útgáfu af klassíska réttinum “Önd Orange”. Keppendur fá 2 heilar Franskar Barberie endur sem skylduhráefni.
Eftirréttur Keppendur skulu nota frosin íslensk aðalbláber, Cacao Barry mjólkursúkkulaði 38% og gríska jógúrt. Aðalatriðið í eftirréttinum verður að vera borið fram heitt.
Keppendur hafa svo 5 klst til að undirbúa matinn.
Myndir
Með fylgja myndir þegar hráefnið var uppljóstrað í gærkvöldi.
Húsið er opið fyrir alla gesti kl: 12 – 18, eftir það er einungis opið fyrir gesti sem hafa tryggt sér miða á kvöldverð samhliða keppninni þar sem Gummi Ben, Eyþór Ingi og landsliðið munu sjá um stemninguna.
Í gær föstudaginn 22. september fór fram í Hörpu úrslitakeppni nema í matreiðslu og framreiðslu um titilinn framreiðslu og matreiðslunemi ársins 2017. Sigahæstu nemarnir í keppninni koma til með að taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem fer fram í Kaupmannahöfn dagana 20 – 21 apríl 2018.
Vídeó
Denis Grbic Kokkur ársins 2016 myndar hér úrslitakeppni Matreiðslu- og Framreiðslunema 2017:
[fbvideo link=”https://www.facebook.com/Veitingageirinn.is/videos/1580725711990941/” width=”500″ height=”400″ onlyvideo=”1″]
Úrslit verða kynnt í kvöld úr keppnunum Kokkur ársins 2017 og Framreiðslu og Matreiðslunemi ársins 2017 við hátíðlega athöfn.
Myndir: facebook / Kokkur ársins
#KokkurArsins Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu í dag laugardaginn 23. september.
0 notes