Hvað sem það er, góður Guð. Ég þigg hvað sem er.
0 notes
Daginn eftir útgáfuna hafði bókin ekki enn skilað sér í nema örfáar búðir.
0 notes
Endurtekningin fær mig til að hugsa: Hvað sem er! Hvað sem er annað! Bara ekki þetta aftur!
0 notes
Búðirnar eru fullar að bókum sem ég annað hvort nenni ekki að lesa eða hef ekki tíma til að lesa.
0 notes
Sömu verkefni verða viðfang frestun aftur og aftur og aftur og aftur.
0 notes
Allt er tilbúið fyrir breytinguna, þá stóru. Við bíðum, ekkert gerist.
0 notes
Ég man ekki hvað þetta líf er búið að vera í gangi lengi, þessi þáttur, þegar allt er eins og það er í dag.
0 notes
Ég er búinn að gleyma svo mörgu og veitir ekki af því að rifja upp.
0 notes
Í framtíðinni verður kannski einvörðungu boðið á póst-módernískan mat. Það er rökrétt þróun.
0 notes
Það er eins og heil mannsævi hafi liðið. Samt hef ég ekki komið því í verk að lesa allar þessar bækur.
0 notes
Þegar þessi mynd var birt var ég kominn átta mánuðum á eftir áætlun.
0 notes
Einu sinni ætlaði ég að henda öllum bókunum mínum en gat það ekki. Ætli ég hafi ekki fundið á mér að ég væri á villigötum.
0 notes
Þegar húsið var hannað hefur einhver gefið því gaum hvert svalirnar snúa. Fyrir það er ég þakklátur.
0 notes
Stundum óska ég þess að hlutir detti úr tísku til að ég geti notið þeirra án þess að líða að ég sér fórnarlamb tískunnar.
0 notes
Auðvitað er stemning að eiga aðventudagatal, til dæmis með ostum, en sjálfsagt væri hagstæðara að kaupa ostana í lausu. Maður fengi meira fyrir peninginn.
0 notes
Enn og aftur förum við út að borða. Af hverju þarf allt alltaf að vera eins.
0 notes
Ég er mjög stoltur að hafa tengt þessa lampa alveg sjálfur. Þó að það séu mörg ár síðan er ég enn að hugsa um hvað ég stóð þig vel.
0 notes